Starfsmenn Stefnu hafa haft nóg fyrir stafni að undanförnu að taka á móti nýjum viðskiptavinum í Moya vefumsjónarkerfinu. Í
ágúst voru opnaðir hvorki meira né minna en 17 vefir í Moya og það af öllum stærðum og gerðum. Meðal nýrra viðskiptavina
sem hafa valið að fela vef sinn í hendur Moya eru ASK Arkítektar, Tölvuskólinn iSoft Þekking og sveitarfélagið Svalbarðsströnd. Margir
viðskiptavinir Stefnu kjósa auk þess að vera með Innri vef í Moya. Meðal þeirra eru Samherji, Höldur og Fjallabyggð. Innri vefir eru lokaðir
öllum nema starfsfólki viðkomandi félaga þar sem þeir hafa aðgang að gögnum, samskiptum og viðeigandi upplýsingum er viðkemur starfi
þeirra eða fyrirtækisins.
Í dag eru um 250 ánægðir viðskiptavinir Stefnu að nota Moya vefumsjónarkerfi. Starfsmenn Stefnu bjóða nýja viðskiptavini velkomna í
hópinn og óska til hamingju með nýja vefi sína.