Desember 2010
Stefna hefur gefið út nýja útgáfu af Moya vefumsjónarkerfinu. Helstu breytingar í útgáfunni er aukin áhersla á leitarvélabestun og ný stjórnun á valmyndakerfinu sem gefur meiri möguleika í stjórnun og uppsetningu veftrés. Einnig hefur kerfið verið gert ennþá einfaldara, komið nýtt myndasafn, nýr ritill og búið að bæta við tengingum við til dæmis Facebook og Twitter.
Nánar
Í desember bjóðum við viðskiptavinum okkar uppá að skreyta vefinn sinn um hátíðarnar. Dæmi um jólaskraut er jólabakgrunnur, jólasveinahúfa á lógó, fallandi snjór yfir skjáinn og fleira. Þetta fer allt eftir því hvað er viðeigandi miðað við útlitið sem er á vefnum. Endilega hafðu samband og við reddum jólaútliti á vefinn þinn fyrir aðeins 14.900 kr. án vsk.
Nánar
Við í Stefnu höfum breytt um lit, lógó og endurhannað vefinn okkar og bætt vöruúrval. Helsta breytingin er þó glæný og öflug Moya sem hefur tekið stakkaskiptum með útgáfu 1.15, en við höfum einnig tekið hjálparsíðuna okkar í gegn. Nú er aðgengi að hjálpinni enn betra og vinnum við hörðum höndum við að útfæra hjálp fyrir þessa nýju útgáfu af Moya.
Skoða Stefna.is
Stefna býður nú upp á nýja þjónusta en það er vefumsjón. Vefstjóri hefur oftar en ekki annað hlutverk innan fyrirtækisins en að sinna vefstjórn. Vefstjórahlutverkið verður þó oft aukavinna sem eykur álag og á til að vera ekki nógu vel sinnt. Með því að fela Stefnu vefstjórn minnkar það álagið á fyrirtækinu og býður uppá að sérfræðingur sér um að setja efnið á vefinn. Fyrirtæki einfaldlega sendir efnið með einfaldri útskýringu til Stefnu og efnið verður sett snyrtilega upp á vefinn á þeim stað sem óskað er eftir. Stefna aðlagar efnið og útbýr grafískt myndefni með ef þess er þörf.
Nánar
Í mars 2010 var Pálmar Edvardsson ráðinn sem grafískur hönnuður hjá Stefnu hugbúnaðarhúsi. Með tilkomu Pálmars bættist við öflugur liðsmaður í hópinn og getum við tekist á við nýja hluti í vöru- og þjónustuframboði Stefnu. Hlutverk Pálmars er að hanna heimasíðuútlit fyrir viðskiptavini okkar, auk þess að hanna markaðsefni, auglýsingar og merki.
Nánar
|