Júní 2011

VEFUR MENNTASKÓLANS Á AKUREYRI

Mynd af vef MAÁ undanförnum vikum hefur Stefna unnið í samstarfi við Menntaskólann á Akureyri að því að endurnýja vef skólans. Stefna sá um hönnun og uppsetningu vefsins. Á ma.is eru nú talsvert fleiri og fjölbreyttari upplýsingar um skólann og starfsemi hans, nýtt kynningarefni og fjöldi
mynda úr skólastarfinu.

Skoða ma.is

VEFUR SAMHERJA

Mynd af vef SamherjaSamherji er kominn með glæsilegan vef sem er bæði einfaldur og þægilegur. Stefna sá um hönnun og uppsetningu vefsins en vefurinn er gott dæmi um hvernig hægt er að koma fyrir miklum texta á forsíðu án þess að það líti illa út. Texti á forsíðu hjálpar almennt til við að fá
innsýn inní hvert maður er að fara og hefur mikil áhrif á niðurstöður í leitarvélum.

Skoða samherji.is

SÆLUHÚS AKUREYRAR MEÐ TENGINGU VIÐ DK

Sæluhús - vefur með bókunarkerfi og tengingu við dkStefna og DK hugbúnaður tóku saman höndum við þróun og uppsetningu á tengingu á milli Moya og bókunarkerfis DK. Stefna sá um hönnun og uppsetningu á vef Sæluhúsa Akureyrar og tengdu hann við bókunarkerfi DK. Þessi tenging leiðir til þessa að nú veit Moya hve mörg herbergi eru laus, hvort tilboðsverð sé í gangi og skilar bókunum á réttan stað. Þetta gerir alla vinnu í kringum bókanir mikið þægilegri fyrir bæði viðskiptavini og starfsmenn.

Skoða saeluhus.is

STEFNA STYRKIR VÍMULAUSA ÆSKU MEÐ NÝJUM VEF

vimulaus.is

Stefna styrkir Foreldrasamtökin Vímulaus æska með nýjum vef. Stefna gefur alla vinnu við aðgengishönnun, útlitshönnun, vefun og uppsetningu til að halda uppi gagnvirkum vef. Stefna gefur einnig samtökunum hýsinguna á vefnum og póstföngum. Með þessu vonumst við til þess að skilaboð samtakanna nái að berast betur til landsmanna og þessi þarfa þjónusta fái aukinn byr til enn betri starfa.

Skoða vimulaus.is


www.stefna.is