Mars 2011
STEFNA Á NETIÐ EXPO
Stórsýningin Netið EXPO verður haldin 11.-13. mars 2011 í Vetrargarðinum í Smáralind. Þetta verður 2. árið í röð sem sýningin fer fram og er hún haldin í samstarfi við Reykjavík Internet Marketing Conference (RIMC). Starfsmenn Stefnu munu fjölmenna á staðinn og kynna Moya vefumsjónarkerfið, Matartorg, SpList og margt fleira úr smiðju fyrirtækisins. Einnig verður ný og spennandi veflausn kynnt á sýningunni. En sjón er sögu ríkari og því hvetjum við alla áhugasama til að heimsækja okkur og sjá hvað er í boði.
Nánar um Netið EXPO
NORÐURÞING UPPFÆRIR VEFINN SINN
Norðurþing samdi við Stefnu um uppfærslu á vef sveitarfélagsins. Megin áhersla var lögð á að gera vefinn aðgengilegri og þægilegri í notkun. Flýtileiðir á forsíðu voru settar í flipa og flettilista auk þess sem nýr tilkynningadálkur leit dagsins ljós. Vefurinn notast við Stillingar.is sem bætir aðgengi netverja með lesörðuleika til muna. Hönnun og uppsetning vefsins var alfarið í höndum Stefnu og sýnir hvernig hægt er að hafa viðfangsmikinn vef látlausan og þægilegan.
Fara á vef Norðurþings
BRYGGJAN FÆR NÝJAN VEF OG PIZZUKERFI
Stefna hefur hannað útlit og sett upp vef fyrir Bryggjuna. Einnig var smíðað pöntunarkerfi svo viðskiptavinir geti pantað pizzur í gegnum netið. Í kerfinu er hægt að velja álegg, skipta pizzum í tvennt og velja sér meðlæti. Lögð var áhersla á að gera pöntunarferlið einfalt og fljótlegt. Settur var upp tölvubúnaður á bryggjunni sem er tengdur við vefinn svo hægt sé að halda utan um pantanir og prenta þær út.
Skoða vef Bryggjunnar
GÓÐ ÞJÓNUSTA, ENN BETRI
Stefna hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á skjóta þjónustu. Til að standa straum af auknum fjölda viðskiptavina var ráðinn nýr þjónustufulltrúi. Krafa var gerð um góða almenna tölvukunnáttu og samskiptahæfni. Helgi Steinar Halldórsson varð fyrir valinu og hefur sinnt starfinu síðan í febrúar. Helgi Steinar vann hjá Nova á Glerártorgi síðastliðin tvö ár. Hann er einnig verktaki í ljósamennsku og áhugaljósmyndari.
Nánar um Helga Steinar
NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI
Matthías Rögnvaldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnu. Matthías er stofnandi Stefnu og hefur starfað í fyrirtækinu og stjórn þess frá upphafi. Matthías starfaði sem kerfis og þjónustustjóri Skrín ehf. á Akureyri fram að stofnun Stefnu. Með stjórnarstörfum hefur hann einnig verið viðskiptastjóri hjá Þekkingu og tæknistjóri Samvirkni. Auk þess hefur Matthías verið einn helsti ráðgjafi í tölvu og upplýsingamálum margra af öflugustu fyrirtækjum Norðurlands. Það bíða hans mörg spennandi verkefni innan Stefnu. Við þökkum Árna Kár fyrir samstarfið í gegnum árin, óskum honum alls hins besta og bjóðum Matthías velkominn aftur í stólinn.
|