Nóvember 2011
Í desember bjóðum við viðskiptavinum okkar uppá að skreyta vefinn sinn fyrir
hátíðarnar. Dæmi um jólaskraut er jólabakgrunnur, jólasveinahúfa á lógó, fallandi snjór yfir skjáinn og fleira.
Skrautið er aðlagað að hverjum vef fyrir sig. Endilega hafðu samband og við reddum
jólaútliti á vefinn þinn fyrir aðeins 16.900 kr. án vsk.
Nánar
Öllum að
óvörum, kom tilkynning frá Adobe þar sem þeir sögðust ætla að hætta allri þróun á Flash fyrir snjallsíma. Í
staðinn ætla þeir að einbeita sér að HTML5 þróun. Flestir vafrar fyrir síma og spjaldtölvur styðja HTML5 í dag, enda er
það mun hentugra fyrir tæki sem ganga fyrir rafhlöðum. Adobe heldur áfram að þróa Flash fyrir PC tölvur og eru þeir þegar
byrjaðir á útgáfu 12 af Flash spilaranum.
Nánar
Á dögunum tilkynnti Google um nýja útgáfu af vefgreiningartólinu Google Analytics. Þessi
útgáfa hefur fjölmarga nýja kosti sem vert er að skoða:
- Nú er hægt að fylgjast með allri umferð á vefnum sínum í rauntíma.
- Uppsetning á Funnels veitir mun meiri upplýsingar.
- Hægt er að skoða sérstaklega umferð snjallsíma
- Það er komin er ný myndræn framsetning á umferðarflæði.
- Upplýsingar um umferð orðnar mun ítarlegri. Hvaðan koma gestirnir, hvað skoða þeir og hversu lengi staldra þeir við?
Nánar
Það er leikur einn að læra á
Moya vefumsjónarkerfið. Nú er hægt að horfa á kennslumyndbönd fyrir nýjustu útgáfu af Moya. Til að byrja með eru
myndböndin 7 en það bætist í sarpinn eftir því sem á líður. Hægt er að horfa á nýju kennslumyndböndin
bæði á YouTube og á
Stefna.is. Best er að horfa
á þau í heilskjá og mestu upplausn.
Nánar
|