Um Stefnu

Fyrirtækið var stofnað þann 9. september 2003 og er í eigu starfsmanna fyrirtækisins og Samvirkni. Starfsmenn Stefnu eru tólf talsins í dag og

Um Stefnu

Fyrirtækið var stofnað þann 9. september 2003 og er í eigu starfsmanna fyrirtækisins og Samvirkni. Starfsmenn Stefnu eru tólf talsins í dag og hefur fyrirtækið náð góðum árangri með vefumsjónarkerfið Moya, veflausnarforritið Matartorg og vefkönnunarkerfið SPList. Stefna lagði frá upphafi áherslu á víðtæka þjónustu á sviði upplýsingatækni, verslun og hugbúnaðarþróun á sviði veflausna. Auk þess rak það Tölvuskólann Stefnu. Í dag einbeitir það sér eingöngu að hönnun, þróun og sölu á hugbúnaði.

Starfsmenn Stefnu koma úr öllum áttum tölvugeirans og hefur það átt stóran þátt í hve vel hefur tekist upp við þróun og sölu á vefumsjónarkerfinu Moya. Frá upphafi hefur Stefna keppt að því að vinna sér inn traust viðskiptavina sinna með áreiðanleika, þjónustulund og hugvitssömum lausnum á vandamálum. Stefna hefur unnið að fjölmörgum sérlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir og veitt ráðgjöf um rekstur upplýsingakerfa, tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum en hugsar fyrst og fremst um persónulega og vandaða þjónustu fyrir alla viðskiptavini sína.

Reynsla og þekking starfsmanna hefur orðið til þess að Stefna er rótgróið fyrirtæki með marga öfluga og hliðholla viðskiptavini. Einkenni Stefnu eru persónuleg og góð þjónusta, vönduð vinnubrögð og við vinnum hratt og vel að úrlausnum vandamála.

Höfuðstöðvar Stefnu eru á Akureyri en fyrirtækið er einnig með starfsstöð í Kópavogi.

Hafnarstræti 97, 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 10, 3. hæð | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570