Stefna er sífellt að leita að öflugum starfsmönnum sem hafa brennandi áhuga á hugbúnaðarþróun. Fyrirtækið býður upp á gott starfsumhverfi þar sem starfsfólk tekur virkan þátt í starfsemi fyrirtækisins og fær að njóta sín.
Markmið fyrirtækisins er að hafa ætíð á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem býr yfir faglegri þekkingu til að tryggja gæði þjónustunnar. Lögð er rík áhersla á markviss sjálfstæð vinnubrögð, skýra ákvörðunartöku og frumkvæði í starfi.
Allar umsóknir um starf eru geymdar í sex mánuði en síðan er þeim eytt nema óskað sé eftir framlengingu gildistíma. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband