Fjarþjónusta

Í Fjarþjónustu geta tæknimenn Stefnu tengst tölvu viðskiptavina yfir vefinn.  Þetta getur flýtt fyrir úrlausn mála og jafnast á við að fá tæknimenn á

Fjarþjónusta

Í Fjarþjónustu geta tæknimenn Stefnu tengst tölvu viðskiptavina yfir vefinn.  Þetta getur flýtt fyrir úrlausn mála og jafnast á við að fá tæknimenn á staðinn.
Með fjartengingu þá yfirtekur þjónustumaður Stefnu tölvuna og báðir aðilar sjá það sama á skjánum.  Hægt er að greina vandamál og aðstoða á mjög fljótlegan hátt með því að sjá nákvæmlega það sem er á skjánum.

Internet Explorer
Smellið á viðeigandi hlekk.  Þá opnast gluggi þar sem smellt er á Run.  Þá hleðst það niður og byrjar að keyrast í tölvunni.  Smellir aftur á Run þegar næsti gluggi kemur.  Þegar TeamViewer glugginn hefur opnast þá er ID númer sem þarf að gefa þjónustumanni Stefnu til að hann geti tengst tölvunni.

Firefox
Sama og fyrir ofan nema það þarf að vista forritið í staðin fyrir að keyra það.  Ath að fylgjast með staðnum þar sem forritið halast niður.  Best er að hala því niður á skjáborðið til að auðvelda aðgengi.  Ef þið týnið staðnum þar sem forritið halaðist niður þá getið þið farið í Tools og Downloads í vafranum og tvísmellt þar á TeamViewer.exe

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570