Spurt og svarað

Hvers vegna er textinn á heimasíðunni allur í rugli? Ath að neðangreint leysir mjög mörg vandamál eins og "Af hverju get ég ekki breytt leturstærð", Af

Spurt og svarað

Hvers vegna er textinn á heimasíðunni allur í rugli?

Ath að neðangreint leysir mjög mörg vandamál eins og "Af hverju get ég ekki breytt leturstærð", Af hverju get ég ekki teki Bold af og fleiri leturvandamál.
Í langflestum tilfellum er um að ræða auka kóða sem kemur með textanum þegar maður afritar úr Word.  HTML ritlar eru ekki sérlega hrifnir af Word kóða og því höfum við takka sem heitir ýmist "HTML hreinsun" eða "Hreinsa snið" eftir útgáfum.  Til að þetta virki almennilega, þá er smellt einhversstaðar í textann sem á að laga, haldið inni CTRL+A.  Þá litast allur textinn (verður valinn) og hægt er að smella á viðeigandi hreinsa hnapp.  Við það hreinsar kerfið óæskilegan kóða sem hefur fylgt með textanum.  Ef vandamálið leysist ekki getur reyns nauðsynlegt að afrita textan allan í Notepad áður en hann er settur á vefinn.

Tölvupóstforritið sendir ekki út póst

Passa þarf að réttur outgoing mail server sé valinn.  Ef verið er að nota outgoing mail server hjá internet þjónustuaðilanum þá þarf að ganga úr skugga hjá þeim hvaða póstþjón á að setja í outgoing mail server.  Ef verið er að nota fartölvu þá er best að nota póstþjón stefnu til að senda pósta.  Til þess þarf að fara í stillingar í póstforritinu, setja þar í outgoing mail server: postur.stefna.is.  Þegar póstþjónn Stefnu er notaður fyrir outgoing mail server þá þarf að auðkenna hann með því að fara í advanced og velja að nota lykilorð til auðkenningar.  Í Outlook er hægt að velja "Nota sama auðkenni og fyrir incoming mail server"

Vefurinn er rosalega þungur (Lengi að hlaðast)

Líklegasta skýringin er að það hafi verið settar of stórar myndin á vefinn.  Ath að þegar myndum er hlaðið upp á skráarsvæðið þá er hægt að láta kerfið minnka þær niður í nokkrar stærðir.  Ekki er mælt með því að setja orginal myndirnar með texta því þó það sé tekið í hornin á myndinni og minnkað niður þá minnkar ekki eðlisleg stærð myndar.  Best er að láta kerfið búa til viðeigandi stærð, t.d. 320 px og ef það á að vera möguleiki á að skoða stærri útgáfu þá er hægt að hlekkja í upprunalegu myndina eða jafnvel bara 640px stærðina.

Myndir með texta sjást ekki lengur

Ef mynd sem var með texta sést ekki lengur þá er líklegt að mynd hafi verið færð úr möppunni sem hún var í á skráarsvæðinu, myndin endurskýrð eða mappan sem myndin er í endurskýrð.  Þegar mynd eða mappa sem inniheldur mynd er endurskýrð þá þarf að endurnýja hlekki sem vísa á staðinn, hvort sem það er hlekkurinn sem segir kerfinu hvar myndin er, eða hlekkur í skjal til að opna það.

PDF skjal opnast ekki

Ef búið er að setja pdf skjal á skráarsvæðið og það opnast ekki þegar búið er að hlekkja í það eru tvær mögulegar skýringar.  Það er eitthvað að skránni eða hún hefur íslenska stafi í nafni.  Vafrar lesa ekki íslenska stafi og því þarf að passa að þeir séu ekki í nafninu.  Hægt er að endurnefna skrá beint í skráarkerfi.
Sama á við ef mappa sem inniheldur skránna hefur íslenska stafi.

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570