Tölvupóststillingar

Hægt er að nálgast tölvupósta í gegnum vefpóst Stefnu á http://vefpostur.stefna.is eða með því að smella á "Vefpostur" hér efst á vefnum. Til að skrá sig

Tölvupóststillingar

Hægt er að nálgast tölvupósta í gegnum vefpóst Stefnu á http://vefpostur.stefna.is eða með því að smella á "Vefpostur" hér efst á vefnum. Til að skrá sig inn er gefið upp netfang og lykilorð. Um tvo mögulega vefpósta er að ræða. Annars vegar SquirrelMail sem er einfaldur en hraður og hins vegar RoundCube sem er nútímalegri, með þægilegt notendaviðmót. Vefpóstur Stefnu er með íslensku notendaviðmóti.

Uppsetning í tölvupóstforritum

Þegar póstreikningur er settur upp í póstforritum eins og Outlook eða Thunderbird þá eru nokkrar breytur sem þarf að hafa á hreinu.

  • Notendanafn er allt emailið: (Dæmi: einhver@eitthvad.is)
  • Hægt er að velja um POP3 eða IMAP
    • POP3: Póstur halast niður í tölvuna og ekkert afrit er skilið eftir á vefþjóni.  Notast þegar um eina tölvu er að ræða og ekki þörf á að nálgast gamlan tölvupóst frá öðrum stað.  Hægt er að nálgast nýjan tölvupóst í gegnum vefpóstinn.
    • IMAP: Samskiptagátt milli póstforrits og póstþjóns.  Póstþjónn geymir afrit af öllum pósti og ef það er búin til mappa í póstforritinu þá verður hún einnig til á póstþjóni.  Þannig endurspeglar póstþjónninn það sem gerist í póstforritinu og hægt er að setja upp aðganginn í mörgum tölvum.
  • Incoming mail server: postur.stefna.is
  • Outgoing mail server: postur.stefna.is
    Ef "outgoing mail server" Stefnu er notaður þarf að auðkenna með notendanafni og lykilorði. Einnig er hægt að nota Outgoing mail server hjá internet veitu hvers og eins. Til dæmis er "outgoing mail server" postur.simnet.is hjá Símanum og postur.internet.is hjá Vodafone. Ekki þarf að auðkenna outgoing mail server hjá internetveitum með notandanafni og lykilorði.

Ef það vantar nánari upplýsingar um uppsetningar á póstforritum þá er gott að fara á heimasíðu Símans, en þeir eru með leiðbeiningar fyrir allar helstu gerðir póstforrita.  Fara á heimasíðu Símans

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570