Grafísk hönnun

Vefsíður eru einn helsti auglýsingamiðill nútímans og því er nauðsynlegt að síðan sé faglega smíðuð og glæsileg. Hjá Stefnu smíðum við vefsíður sem eru

Grafísk hönnun

Grafísk vinnsla

Vefsíður eru einn helsti auglýsingamiðill nútímans og því er nauðsynlegt að síðan sé faglega smíðuð og glæsileg. Hjá Stefnu smíðum við vefsíður sem eru hraðvirkar og hafa nútímalegt útlit.  Það er margt sem þarf að hugsa útí við hönnun á vef.  Fyrst þarf að hugsa um uppbyggingu vefsins, hvað á að vera á vefnum og hvers ætlast vefsíðueigandi af vefnum.  Þá koma litir, núverandi markaðsefni og logo fyrirtækis einnig inní sem áhrifaþættir.  Hafa verður í huga að vefurinn á að vera einfaldur og gegnsær, þannig að notandinn lendi ekki í vanda eða þurfi að hugsa of mikið til að komast þangað sem hann vill komast.  Þar kemur aðgengishönnun inní, en hún er einnig stór hluti af hönnun útlits.  Við leggjum metnað okkar í að skila af okkur vöru sem viðskiptavinurinn er sáttur við bæði kerfislega og útlitslega.

Stefna hefur unnið með fjölmörgum grafískum hönnuðum og hönnunarhúsum og er ekkert er því til fyrirstöðu að setja útlit frá þriðja aðila á vefi í Moya.


Vefhönnun

Stefna tekur að sér vefhönnun fyrir allar gerðir vefa.  Með grafískan hönnuð innan veggja Stefnu sem þekkir Moya og hvað vefumsjónarkerfið er fært um að gera, er hægt að fullnýta sköpunargáfuna og skila hnitmiðaðri og vel úthugsuðu útliti sem eflir enn frekar vefsíðuna og gerir hana að því nytsamlega tóli sem hún á að vera.  Ferlið byrjar á útlitsgreiningu þar sem við spyrjum viðskiptavin nokkurra staðlaðra spurninga sem gera okkur kleift að skila af okkur hnitmiðaðri vöru sem uppfyllir öll skilyrði viðskiptavinar.  Því næst skoðum við fyrsta draft með viðskiptavini og þegar sátt er komin á útlit þá tekur hönnun á innsíðum við.  Þegar allir eru orðnir sáttir við útlitið þá taka forritararnir við og setja upp vef með sérhönnuðu útliti og þeim kerfiseiningum sem við eiga.

Firmahönnun

Fyrir utan vefhönnun þá tekur Stefna að sér að útbúa logo, bréfsefni, nafnspjöld og blöðunga fyrir fyrirtæki.  Hægt er að láta hanna hluta af þessu eða fá heildarpakka.  Skoða dæmi um hönnunarpakka
Stefna tekur einnig að sér auglýsingagerð.  Skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða auglýsingu í pappírs eða stafrænum miðlum.  Við útbúum auglýsingar í blöð og auglýsingar á vefsíður, bæði bannera og lítil box.

Hafa samband við Stefnu um tilboð í hönnun

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570