SEO er skammstöfun fyrir "search engine optimization" eða leitarvélabestun.
Það að taka vefsíðu í gegn með SEO í huga skiptir gríðarlegu máli þegar viðkomandi vill koma ofarlega í leitarvélum. En ef rangt er staðið að málum þá er einnig hægt að skemma fyrir sér.
Það sem við gerum er meðal annars:
- Fara yfir uppbyggingu á veftré og innihaldi
- Skoðum síðuna með tilliti til tæknilegra atriða s.s. hýsing, endurkast, villusíðum og JavaScript.
- Innihald vefs og þróun á efnis innsetningu
- Komum með tillögur um markaðssetningu á vefnum og markaðsherferðum þar sem við á.
- Lykilorða uppbygging á vef og í Meta tags
- Tillögur að því hvernig vefur er hannaður með vissan markaðshóp í huga
- Setjum upp aðganga hjá Google og Yahoo til að virkja og setja upp þá þjónustu sem nýtist okkur við að greina og halda utanum þau tól sem notuð eru í leitarvélabestun.
- Við setjum meðal annars upp Google analytics og webmaster tools.
- Notum gmail aðgang til að halda utanum þetta sem færist til viðskiptavinar þegar og ef hann vill fara að sjá um þetta sjálfur.
- Setjum upp takmörk (goals) innan analytics sem við höldum utanum, greinum og bætum eftir þörfum.
- Fylgjumst með takmarki og stöðu mála allavega einu sinni í viku.
- Vinnum með viðskiptavininum í að finna ábyrga aðila til að hlekkja í vefinn.
- Sendum skýrslu yfir stöðu mála einu sinni í mánuði og förum yfir málin.
Vefumsjónarkerfið Moya hefur verið hannað með leitarvélar í huga. Þá eru fyrirsagnir notaðar til að láta leitarvélar vita hvaða vægi hver fyrirsögn hefur og grunnurinn allur aðlagaður eftir kúnstarinnar reglum. Meðal annars getur notandi keyrt út xml útgáfu af veftré vefsins sett meta orð á vef, síður og fréttir.
Þegar verið að markaðssetja fyrirtæki á internetinu þá ber að hafa í huga að það eru til tvær útgáfur af leitarniðurstöðum. Lífrænar leitarniðurstöður (organic search results) og borgaðar auglýsingar.
Í Google eru borgaðar auglýsingar niðurstöður hægra megin og/eða efst en tekið sérstaklega fram að þetta séu "greiddir tenglar". Að kaupa auglýsingaorð og birtast í greiddum tenglum hefur engin áhrif á lífrænu leitina, heldur fær maður birtingu í greiddu dálkunum í samræmi við þá upphæð sem maður greiðir.
Við leggjum að sjálfsögðu alltaf aðal áherslu á að koma vel út í organic search. Það er að fá vef til að birtast í náttúrulegum leitarniðurstöðum á google og yahoo.
Það þarf að tryggja að vefur sé með nógu góða einkunn til að vera í efstu sætunum og það eru mjög margir þættir sem hafa áhrif á það hvar maður lendir. Það er ekki til nein ein töfralausn eins og að henda tengli inná tenglasíður, nota skuggavefi eða dyravefi. Nokkrir hlutir í uppbyggingu góðs leitarvéla orðspors eru uppbygging vefsíðu, bakendi kerfis sem unnið er í, notkun á lykilorðum, sem undirstrika mikilvægustu orðasambönd sem tengjast markaðssetningu fyrirtækisins og tenglar frá öðrum siðum.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband