Stefna styður opinn og frjálsann hugbúnað
Stefna hugbúnaðarhús hefur veitt ráðgjöf og séð um uppsetningu á frjálsum og opnum hugbúnaði (open source) um árabil. Frjáls og opinn hugbúnaður hefur verið í örum vexti um allan heim og er nú viðurkenndur sem góður kostur við val á lausnum í upplýsingatækni. Opin hugbúnaður byggist á forritunarkóða sem höfundar hafa valið að gera opinberan og aðgengilegan fyrir alla. Stefna hefur mikla og góða reynslu af Linux stýrikerfinu, Apache vefþjóninum,PHP, MySQL gagnagrunninum auk fleiri forrita.
Meðal verkefna sem Stefna hefur aðstoðað á þessu sviði er uppsetning á Linux netkerfi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Um er að ræða disklausar útstöðvar í skólaumhverfinu sem notaðar eru til vefskoðunar og verkefnavinnu nemenda. Þá eru fjölmargar tölvur kennara komnar alfarið yfir á Open Source umhverfið og keyra m.a. Ubuntu stýrikerfið og Open Office ritvinnslupakkann og Thunderbird póstforritið. Stefna sá um ráðgjöf, utanumhald og uppsetningu þegar Menntaskólinn við Tröllaskaga var settur á laggirnar og ákvað að leggja áherslu á opinn hugbúnað og nota hann á öllum þeim sviðum sem hægt væri. Settir voru upp netþjónar, fartölvur, útstöðvar, netkerfi, prentarar og póstþjónn. Allt með opnum hugbúnaði.
Stefna hefur sett upp, þjónustar og hýsir fjöldann allan af opnum hugbúnaði.
Þar á meðal er:
- Moodle námsumhverfið
- DotProject verkumsjónarkerfið
- Póstsíur til að verjast ruslpóstum og vírusum
- Linux servera og útstöðvar
- Vafravélar - Kiosk vélar ætlaðar til að vafra á netinu
- Vanilla, phpBB, PunBB ofl. spjallborð
- Wiki kerfi
- Asterisk símalausnir
- Open Source vefumjónarkerfi s.s. Joomla, Drupal og Wordpress

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband