Sjálfstæðar einingar
Mörg verkefni sem koma til Stefnu snúast um að sérsmíða lausnir. Þá er annaðhvort um sjálfstæða einingu eða virkni sem er hluti af vef. Oftar en ekki er um viðbót við vefumsjónarkerfið að ræða. Dæmi um sjálfstæða einingu er t.d. Kvótamarkaðskerfi. Það er kerfi sem heldur utanum kaup og sölu á fisk kvóta. Þar er notendur með skipin sín skráð og geta gert tilboð í kvóta. Sömuleiðis geta notendur fengið og samþykkt tilboð í kvóta og haldið utanum viðskiptin. Þessi lausn er mikilvægt fyrsta skref í kvótaviðskiptum.
Viðamesta sjálfstæða sérlausnin sem Stefna hefur farið í eru smíði á vefumsjónarkerfi fyrir Vodafone sem var hugsað sem grunnur fyrir tölvudeild Vodafone að vinna í. Kröfurnar voru að sjálfsögðu mjög miklar. Enda um öflugan og viðamikinn vef að ræða með mikið af sérlausnum og sérstakri virkni. Á meðal sérlausna á vodafone.is eru Milljón lög í símann, Gull reiknivélin, Finndu rétta símann og Boltavaktin.

Tengingar við önnur kerfi
Þar sem Moya er smíðuð í php þá er mjög auðvelt að tengja hana við önnur kerfi. Meðal tenginga eru samskipti milli vefverslunar og bóhaldskerfa eins og Navision, DK hugbúnaðar og Stólpa. Tengingar á milli markaðskerfis Íslenskra Verðbréfa við Librasoft , tengingar við vedur.is, gengistöflur fjármálafyrirtækja og hitatölur frá kerfum orkufyrirtækja svo eitthvað sé nefnt.

Viðbætur við virkni vefs
Moya er sérstaklega vel til þess fallin að bæta við einingum sem eru sérsmíðaðar og keyrðar sem hluti af vefnum í vefumsjónarkerfinu. Þar eru smáar sem stórar lausnir. Námskeiðakerfi fyrir Isoft tölvuskóla, utanumhald mataræðis og heilsu á heilsubot.is,

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband