Eftir að fleiri og fleiri aðilar hafa kallað eftir þessari þjónustu, þá hefur Stefna ákveðið að bjóða uppá vefumsjón. Í stuttu máli þá er ætlunin að leigja út vefstjóra til að setja efni inná vefinn fyrir viðskiptavini.
Vefstjóri hefur oftar en ekki annað hlutverk innan fyrirtækisins en að sinna vefstjórn. Vefstjórahlutverkið verður þó oft aukavinna sem eykur álag og á það til að vera ekki nógu vel sinnt. Með því að fela Stefnu vefstjórn minnkar það álagið á fyrirtækinu og bíður uppá að sérfræðingur sér um að setja efnið á vefinn. Fyrirtæki einfaldlega sendir efnið með einfaldri útskýringu til Stefnu og efnið verður sett snyrtilega upp á vefinn á þeim stað sem óskað er eftir. Stefna tekur og aðlagar efnið og útbýr grafískt myndefni með ef þess er þörf.
Með því að nota sérfræðiþjónustu Stefnu sparast tími og betri nýtni fæst því tími sem fer í innsetningu efnis tekur styttri tíma en ella. Þannig er hægt að láta starfsmann Stefnu setja mun meira efni inn á hverri klukkustund en ella.
Í boði eru eftirfarandi pakkar:
- Frjálsi vefstjórinn: Fyrirtæki sendir inn efni til innsetningar þegar þeim hentar. Unnið er í tímavinnu og fer gjaldið þá eftir magni og tíma sem fer í að setja það inn.
Lágmarksgjald kr. 4.950 án vsk - Litli vefstjórinn: Hlutverk sem hentar litlum og jafnvel meðalstórum fyrirtækjum og stofnunum. Settar eru inn fréttir og breytt upplýsingum á vefnum. Innifalið í mánaðargjaldi er vinna í 2 klst. hvern mánuð.
Verð kr. 9.900 án vsk - Stóri vefstjórinn: Ef þú ert með vef sem krefst mikils viðhalds og það er sífellt verið að setja inn efni og breyta efni þá hentar þessi pakki mjög vel. Innifalið eru 6 klst í mánuði sem hægt er að nýta í innsetningu efnis og eða breytingu og aðlögun á virkni vefs eða útliti.
Verð kr. 19.900 án vsk.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband