Akranes.is

17. nóvember 2014
Stefna Ehf
Akraneskaupstaður opnaði nýjan og endurbættan vef nýlega, við sáum um vefhönnun og alla vefsíðugerð, en vefurinn er í vefumsjónarkerfi okkar.
Akraneskaupstaður opnaði nýjan og endurbættan vef nýlega, við sáum um vefhönnun og alla vefsíðugerð, en vefurinn er í vefumsjónarkerfi okkar.

Vefur Akraneskaupstaðar var opnaður nýlega eftir viðamikla og góða undirbúningsvinnu að hálfu stýrihóps verkefnisins. Á sama tíma var opnuð íbúagátt til að bæta rafræna þjónustu við íbúa Akraness þar sem þeir geta nú sótt um húsaleigubætur, leikskólapláss, byggingarlóð og heimaþjónustu.

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir er verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað: „Persónuleg og góð þjónusta, snöggir í svörum, jákvæðir, lausnamiðaðir, stanslaus þróun og eftirfylgni. Þetta eru orð sem lýsa samskiptum Akraneskaupstaðar og Stefnu. Þeir fá okkar topp meðmæli og hlökkum til frekara samstarfs.“

Vefur Akraneskaupstaðar fékk tilnefningu til vefverðlauna SVEF 2014 í flokki opinberra vefja

Vefurinn hefur tekið stakkaskiptum og skartar nú breyttu útliti og breyttum áherslum. Meðal annars má þar nefna:

  • Breytt og bætt flokkun á efni
  • Mikil áhersla á leit
  • Rafræna þátttöku íbúa í að halda vefnum vel uppfærðum
  • Aðgang að upptökum af bæjarstjórnarfundum
  • Aðgang að fundagerðum

Auk þess er vefurinn nú að sjálfsögðu skalanlegur til að hámarka nytsamleika hans fyrir notendur, óháð þvi hvort fólk kýs að gera það í tölvu, spjaldtölvu eða síma.

Stefna óskar Akraneskaupstað innilega til hamingju með nýjan og glæsilegan vef, akranes.is.