Arctic Sea Tours fær nýjan vef

21. maí 2015
Stefna Ehf
Nýr vefur fyrir hvalaskoðunarfyrirtækið er með tengingu við Bókun.is bókunarkerfið.
Nýr vefur fyrir hvalaskoðunarfyrirtækið er með tengingu við Bókun.is bókunarkerfið.

Hvalaskoðunarfyrirtækið Arctic Sea Tours er komið með nýjan og glæsilegan vef. Með tengingu við Bókun.is er framboði ferða og bókanir á þeim stýrt á miðlægan hátt. Vefumsjónarkerfið sér svo um að halda utanum öll gögnin og birta á viðeigandi hátt.

Þennan vef einkennir myndræn framsetning og einfaldleiki. Kíktu til Dalvíkur og skelltu þér í hvalaskoðun hjá Frey Antonssyni og co! Hér er það sem hann hafði að segja um nýja vefinn og samstarfið við okkur:

Freyr Antonsson hjá Arctic Sea Tours„Við erum mjög glöð með nýju vefsíðuna okkar www.ArcticSeaTours.is og einstaklega ánægð með að hafa valið Stefnu sem samstarfsaðila í þessu verkefni. Vinna við hönnum og uppsetningu á vefnum hefur gengið frábærlega og er greinilegt að Stefna hefur á að skipa faglegu og góðu starfsfólki.

Flestum okkar tillögum og óskum var mætt og ef ekki þá voru ráð og leiðbeiningar starfsmanna til þess að við sáum ljósið og í samvinnu gerðum við frábæran vef. Vefumsjónarkerfið er auðvelt í notkun og loksins eftir mörg ár er ég ekki í vandræðum með að setja inn nýtt efni. Markaðssetning verður sterkari hér eftir enda er vefsíðan, okkar öflugasta markaðstól. Við notum bokun.is fyrir vefbókanir og það er frábært að efnið til að selja vöruna þar kemur sjálfvirkt inná síðuna svo sem texti, myndir og video. Kerfin tala saman og þannig á það að vera. Ég mæli hiklaust með Stefnu.“

Við erum með fleiri vefi með samþættingu við Bókun.is kerfið á döfinni, en sú þjónusta hefur notið mikilla vinsælda jafnt hjá bókunarskrifstofum sem og ferðaþjónustuaðilum af ýmsum toga.

Vantar þig vef fyrir þína ferðaþjónustu? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð í vefinn þinn hvort sem þú ert stórhuga eða ert að taka fyrsta skrefið. Ertu í vafa? Kíktu á hvað aðrir viðskiptavinir okkar segja um samstarfið við Stefnu.