Gæðabakstur

01. september 2014
Stefna Ehf
Nýbakaður og ilmandi fínn vefur var að koma úr Stefnu ofninum.
Nýbakaður og ilmandi fínn vefur var að koma úr Stefnu ofninum.

Stefna er stolt af að kynna flunkunýjan og flottan vef fyrir Gæðabakstur.

Fyrirtækið Gæðabakstur var stofnað árið 1993 og í fyrstu einskorðaðist framleiðslan við kleinur og ameríska kleinuhringi í 68m2 húsnæði. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið mikið og er nú orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum í brauðgerð á Íslandi með yfir 120 starfsmenn. Mörg fyrirtæki hafa auk þess sameinast Gæðabakstri t.d. Breiðholtsbakarí, Ömmubakstur, Ragnarsbakarí og Ekta brauð. Gæðabakstur er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi 2012 og 2013. 

Á nýja vefnum þeirra er hægt að nálgast upplýsingar um allar þeirra vörur og þjónustu ásamt ýmsum fróðleiksmolum og uppskriftum. 

Vefurinn er að sjálfsögðu settur upp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Kíkið á bakkelsið á slóðinni gaedabakstur.is.