Hilton Reykjavík Spa opnar vef

08. júlí 2015
Stefna Ehf
Nýtt nafn og nýr vefur!
Nýtt nafn og nýr vefur!

Allir vita að það þýðir ekkert að hlaupa frá vandamálunum, en það er hins vegar mun gáfulegra að njóta þess að skokka á hlaupabretti, slappa af í gufu eða fara í hressandi tíma í Hot Yoga, ButLift eða Zumba! Þetta býður Hilton Reykjavík Spa, en hótelið tók nýverið yfir reksturinn, sem er núna samofinn hótelinu sjálfu.

Nýr vefur þessarar vellíðunarmiðstöðvar innan Hilton hótelsins á Suðurlandsbraut leggur áherslu á auðvelt aðgengi upplýsinga um heilsulindina, líkamsræktina og tíma sem eru í boði jafnt fyrir gesti hótelsins sem íbúa borgarinnar.

LogoVefurinn skartar nokkuð nýstárlegu leiðarkerfi sem helst vinstra megin, en slíkt leiðarkerfi hefur rutt sér til rúms upp á síðkastið í kjölfar vinsælda á farsímavefjum.

Vefur Hilton Reykjavík Spa er enn einn vefurinn sem við smíðum fyrir Icelandair hótelin sem reka Hilton Reykjavík Nordica hótelið ásamt Icelandair hótelunum, Edduhótelunum og Laugarvatn Fontana heilsulindarinnar.