Jarðböðin Mývatni með uppfærðan vef frá Stefnu

14. júlí 2015
Stefna Ehf
Nýr vefur Jarðbaðanna við Mývatn leggur áherslu á lúxus, náttúrulega fegurð og hreinleika baðstaðarins.
Nýr vefur Jarðbaðanna við Mývatn leggur áherslu á lúxus, náttúrulega fegurð og hreinleika baðstaðarins.

Mývatn Nature Baths, eða Jarðböðin við Mývatn eins og þau nefnast á okkar ástkæra ylhýra, hafa fengið nýjan vef. Við sáum um viðmótshönnun, vefhönnun og uppsetningu á vefnum í vefumsjónarkerfi okkar, Moya.

Á svæðinu þar sem Jarðböðin hafa nú byggt upp glæsilega aðstöðu hafa Íslendingar baðað sig frá landnámsöld. Nýi baðstaðurinn opnaði 2004 og er opinn allt árið rétt eins og aðrir baðstaðir landsins. Nýi vefurinn styður vel við glæsilega uppbyggingu svæðisins, þar sem áhersla er á lúxus, náttúrulega fegurð og hreinleika.

Kíktu á vefinn og ekki síður: kíktu í heimsókn í Jarðböðin við Mývatn!