Ný og betri Hekla.is

23. október 2014
Stefna Ehf
Vefurinn hekla.is var endurhannaður frá A til Ö og settur upp í okkar vefumsjónarkerfi, útkoman er alveg hreint glimrandi!
Vefurinn hekla.is var endurhannaður frá A til Ö og settur upp í okkar vefumsjónarkerfi, útkoman er alveg hreint glimrandi!

Bílaumboðið Hekla tók nýlega vefinn sinn Hekla.is og vef notaðra bíla í gegn. Vefhönnun hans var samstarfsverkefni Stefnu og Arnar Smára, sjálfstætt starfandi hönnuðar, en forritarar okkar höfðu umsjón með viðmótsforritun og uppsetningu í Moya vefumsjónarkerfið.

„Við hjá HEKLU erum afar ánægð með nýja vefinn okkar sem hið frábæra starfsfólk hjá Stefnu setti upp fyrir okkur. Vefurinn er einfaldur í notkun, þeim atriðum sem við lögðum áherslu á gerð góð skil, hann lítur mjög vel út og kemur alveg einstaklega vel út í snjallsímum og spjaldtölvum. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og ekki skemmir hve góð þjónustan hefur verið í kringum vefþróunina.“

Halldóra Anna Hagalín hjá Heklu

Við óskum starfsfólki Heklu til hamingju með nýja vefinn og þökkum ekki síður fyrir hlý orð í okkar garð. Viltu lesa hvað hinir viðskiptavinir segja um okkur? Okkar markmið er að standa undir þeim fögru orðum sem viðskiptavinir nota um vörurnar okkar, þjónustu, viðmót okkar og vinnubrögð.