Nýr ferðavefur Iceland Travel

31. ágúst 2015
Stefna Ehf
Ferðavefurinn YourPerfectDayInIceland.is er kominn í loftið!
Ferðavefurinn YourPerfectDayInIceland.is er kominn í loftið!

Við höfum um langt skeið unnið með Icelandair Hotels að fjölbreyttum verkefnum. Það er sérstakt ánægjuefni að vinna með systurfyrirtæki þeirra í Icelandair fjölskyldunni!

IconNú er vefurinn YourPerfectDayInIceland.is kominn í loftið, en verkefnið er byggt á samstarfi við Icelandair Hotels, því Your Perfect Day er vörumerki upplýsingaveitu um skipulagðar ferðir inni á hótelunum með sérstaka áherslu á dagsferðir frá Reykjavík.

Vefurinn styður við verkefnið og gefur gestum hótelanna kost á að kynna sér framboð skipulagðra ferða milliliðalaust, hvort sem er heima í stofu eða inni á hótelherbergi.

Í vefhönnun er áhersla á einfalt aðgengi upplýsinga og að myndirnar njóti sín sem best. Einnig var unnið að tæknilegri samþættingu við hugbúnað ODIN software, en framboð ferða er sótt í þann grunn. Eins og í öðrum verkefnum tengt ferðamannaiðnaði er rík áhersla á leitarvélabestun og að skipulag sé allt framúrskarandi.

Óskum Iceland Travel til lukku með YourPerfectDayInIceland.is og hlökkum til frekara samstarfs!