Nýr vefur FÍB

08. janúar 2016
Stefna Ehf
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur opnað glænýjan vef félagsins, sem veitir margvíslegar hagnýtar upplýsingar!
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur opnað glænýjan vef félagsins, sem veitir margvíslegar hagnýtar upplýsingar!

Nýr vefur FÍB, stærstu frjálsu félagasamtaka landsins, er stórt stökk inn í nútímann. Með vefumsjónarkerfi Stefnu er mun auðveldara en áður að setja efni á vefinn og nýi vefurinn skalast vitaskuld í smærri skjái án vandkvæða.

FÍB veitir hagnýta ráðgjöf og fjölbreytta þjónustu til félagsmanna. FÍB er aðili að FIA Alþjóða samtökum bifreiðaeigenda. Samstaða bifreiðaeigenda í einu neytendafélagi eflir og styrkir áhrifamátt þeirra.

Á vefnum er að finna hagnýtar upplýsingar, fróðlegar greinar og vísanir á gagnlegar síður bæði hér heima og erlendis.

Aðild að FÍB veitir margs konar afslætti og fríðindi, þá er FÍB með aðstoð og tækniráðgjöf fyrir félagsmenn og margt fleira.

Við óskum FÍB til lukku með nýja vefinn!