Pétur Rúnar Guðnason var nýlega ráðinn markaðsstjóri hjá okkur hér í Stefnu. Pétur kemur frá Vodafone þar sem hann hefur starfað að markaðs- og vefmálum síðastliðin 10 ár, en þar áður í rúm 7 ár hjá Margmiðlun.
Pétur hefur mikla reynslu í þessum geira og hefur starfað við vefstjórnun og ráðgjöf síðan 1997 og komið að uppsetningu og þróun vefja hjá fjölmörgum fyrirtækjum. Sérsvið hans er markviss uppbygging vefsvæða með áherslu á þarfir notenda, greiningu þeirra og forgangsröðun.
Pétur ólst upp á Melstað í Miðfirði og er því Húnvetningur, en hefur einnig búið í Þýskalandi. Hann er hluti af teymi okkar í Kópavogi og leiðir kynningu á vörum og þjónustu okkar sunnan heiða. Hann er ávallt til skrafs og ráðagerða um vefmál stór sem smá og er með rótsterkt kaffi á könnunni fyrir gesti.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700