Útför.is í nýjan búning

02. mars 2015
Stefna Ehf
Útfararþjónusta Kirkjugarðanna hefur opnað stórbættan vef
Útfararþjónusta Kirkjugarðanna hefur opnað stórbættan vef

Útfararþjónusta Kirkjugarðanna hefur tekið í notkun nýjan vef. Þar er að finna allar upplýsingar um þá þjónustu sem útfararþjónustan veitir, en áhersla er á að veita skýrar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig starfsfólk útfararþjónustunnar styður við ástvini í kjölfar andláts.

Á vefnum er að finna gátlista um hverju þarf að huga að í undirbúningi útfarar, reiknivélar vegna kostnaðar við útfarir og má einnig sækja lykilupplýsingar á öðrum tungumálum. Þá hefur útfararþjónustan nýverið aukið þjónustu sína vegna lögfræðiráðgjafar.

Nýr vefur Útfararþjónustunnar er á Útför.is, en að ráðgjöf í undirúningi verkefnisins kom Sigurjón Ólafsson hjá Fúnksjón vefráðgjöf, Stefna sá um vefhönnun, forritun og uppsetningu vefjarins.