Vefur Reykjavík Marina Residence siglir úr höfn

03. nóvember 2015
Stefna Ehf
Lúxusíbúðir við hlið Reykjavík Marina hótelsins hafa fengið sinn eigin vef!
Lúxusíbúðir við hlið Reykjavík Marina hótelsins hafa fengið sinn eigin vef!

Ferðalöngum sem eiga leið um Reykjavík býðst nú að gista í glæsilegum reykvískum húsum en samt njóta alls þess sem hótel í fremstu röð býður. Reykjavík Marina Residence íbúðirnar eru hluti af Icelandair hóteli Reykjavík Marina. Frábær staðsetning, einstök þjónusta, nálægð við mannlíf og höfnina blandast þannig saman við íbúðirnar sjálfar sem gefa dvölinni persónulegan blæ með lúxusáferð. Það verður nú varla mikið betra!

Daniel's houseVið hjá Stefnu sáum um vefhönnun, forritun og uppsetningu á vefnum. Vitaskuld er áherslan á myndræna framsetningu, öflugan stuðning við leitarvélabestun, skalanleika og að gefa þessum valkosti í gistingu einkennandi blæ þótt hann sé undir hatti Icelandair hótelanna.

Við erum sérstaklega ánægð með útkomuna, kíktu á vef Reykjavík Marina Residence og myndaðu þér þína eigin skoðun.