
Moya vefumsjónarkerfið er hannað og smíðað af Stefnu frá upphafi og einkennist af þjónustulund og hugvitssemi starfsmanna. Um er að ræða þægilegt en þó gríðarlega viðamikið vefumsjónarkerfi sem getur fullnægt þörfum smárra sem stærri fyrirtækja.
Búið er að hugsa út í allar mögulegar aðstæður og aðgengi fyrir fatlaða er eins og best verður á kosið. Kerfið býður uppá hnappa til að breyta bakgrunni og stærð leturs fyrir lesblinda og sjóndapra. Einnig er Moya skrifuð þannig að skjálesarar lesa hana rétt án þess að lesa kóðann og þar með er vefurinn orðinn aðgengilegur fyrir blinda líka.
Moya 1.15
Stefna hefur gefið út nýja útgáfu af Moya vefumsjónarkerfinu. Helstu breytingarnar í þessir nýju útgáfu eru aukin áhersla á leitarvélabestun og ný stjórnun á valmyndakerfinu sem gefur meiri möguleika í stjórnun og uppsetningu veftrés. Einnig hefur kerfið verið gert ennþá einfaldara, komið nýtt myndasafn, nýr ritill og búið að bæta við tengingum við til dæmis Facebook og Twitter. Nánar »

Hér má finna lýsingu á nokkrum kerfiseiningum sem hjálpa
við að gera Moya að því öfluga vefumsjónarkerfi sem það er.
Auglýsingar
Gefur færi á að birta auglýsingar á ýmsum svæðum vefsins. Hægt er að hafa margar auglýsingar á sama svæði. Kerfið heldur utanum fjölda smella en einnig er hægt er að setja takmarkanir á tíma og smelli. Auglýsingakerfið tekur við öllum helstu myndformum, þar á meðal png og flash.
|
|
Myndbönd
Fyrir utan hina hefðbundnu aðferðir við að setja inn myndbönd, þá býður Stefna uppá Tube einingu. Þessi eining gerir notanda kleift að hlaða upp myndböndum í sérstaka flokka sem hann býr til og kerfið sér um að umbreyta myndbandinu í flash video.
|
Boxastjórn
Þegar vefir hafa verið í loftinu í nokkurn tíma, þá er oftar en ekki búin að skapast þörf hjá vefstjóra fyrir að breyta aðeins til. Boxastjórnun gefur stjórnanda vefsins færi á að færa box til, setja nýja hluti í boxin eins og t.d. Facebook stöðu, kannanir, myndbönd og fleiri hluti.
|
|
Póstlisti
Fullkomið póstlistakerfi sem einnig er notað fyrir html fréttabréf. Hægt er að hafa marga áskriftarflokka, vista fréttabréfin, forskoða, setja inn myndir og hlekki til að gera fréttabréfið meira aðlaðandi. Póstlistakerfið er einnig tengt við fréttakerfið.
|
Fréttir
Mjög öflugt fréttakerfi er í Moya sem býður uppá flokkun niður á svæði sem og efnisflokkun. Þá er fréttakerfið einnig tengt við viðburðadagatalið og póstlistakerfið. Fréttakerfið býður uppá sjálfvirka birtingu og mjög auðvelt er að setja inn frétt þar sem kerfið vinnur fréttamyndina sjálfvirkt í rétta stærð.
|
|
Starfsmenn
Birtir smellanlegan lista yfir starfsmenn fyrirtækisins. Býður þér möguleika á að setja inn nafn, símanúmer, netfang og margt fleira. Hægt er að flokka starfsmenn niður á deildir. Einnig er mögulegt að birta myndir af starfsmönnum.
|
Fyrirspurnir
Mikilvægt er að viðskiptavinir geti sent inn fyrirspurn án vandkvæða. Fyrirspurnarkerfið býður notandanum að senda inn fyrirspurn án þess að þurfa að opna póstforritið sitt. Þegar kerfið hefur sent fyrirspurnina á fyrirfram ákveðið póstfang geymir það afrit á vefnum sem vefstjóri hefur aðgang að.
|
|
Svæðaskipting
Moya bíður uppá svæðaskiptingu á vefum. Þannig getur hvert svæði haft sína eigin valmynd, aðgreind myndaalbúm og aðgreindar fréttir eftir hverju svæði fyrir sig. Svæðaskiptur vefur gagnast mjög vel við tungumálaskiptingu og býður uppá mjög mikla möguleika í aðgengishönnun og uppsetningu stærri vefa.
|
Myndaalbúm
Myndaalbúmið í Moya er mjög öflugt og gefur færi á að búa til mörg söfn sem halda utanum mörg albúm. Hægt er að vinna með myndirnar í kerfinu, snúa þeim og sérsníða smámyndir. Einnig er hægt að raða albúmum og myndum eftir hentugleika og staðsetja albúmin sem hluta af veftré.
|
|
Veftré
Veftré er ein mikilvægasta einingin. Hún heldur utanum valmyndina og gerir þér kleift að raða henni upp með drag&drop. Veftré býr til valmynd og þar er ákveðið hvert hnapparnir eiga að vísa, hvort þeir eigi að vera sýnilegir sem og þar er haldið utanum leitarvélabestun. Hver hnappur getur verið skilgreindur með auka titli, lýsingu og leitarorðum.
|