|
Má bjóða þér viðbótar kerfi við Moya 1.15 sem gerir ykkur kleift að búa til sín eigin eyðublöð (Form). Þetta geta verið starfsumsóknir, skráningar í leiki, hafa samband og margt fleira. Með einföldu viðmóti til þess að stofna og eiga við eyðublöðin ætti hver sem er að geta nýtt sér þessa einingu. Eyðublöðin geta verið blaðsíðuskipt og jafnvel með frjálsum texta í upphafi eða inná milli reita. Með frjálsum texta er til dæmis hægt að vera með texta og mynd fyrir ofan eyðublaðið. Það er hægt að merkja hvaða reiti verður að fylla út og jafnvel setja vissar reglur á texta reitina. Til dæmis ef reitur er ætlaður fyrir símanúmer er hægt að hafa regluna "aðeins tölustafir". Við hvert eyðublað er hægt að stjórna hvort senda eigi skráninguna í tölvupósti, jafnvel hvað skrásetjarinn á að sjá þegar vistun tekst. Allar skráningar eru vistaðar og hægt að skoða þær á vefnum, hala niður í Excel eða PDF skjal.
|
Verð án vsk kr. 120.000 |


Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband