Moya 1.15

Stefna hefur gefið út nýja útgáfu af Moya vefumsjónarkerfinu. Helstu breytingarnar eru aukin áhersla á leitarvélabestun og ný uppsetning

Moya 1.15

Moya logoStefna hefur gefið út nýja útgáfu af Moya vefumsjónarkerfinu. Helstu breytingarnar eru aukin áhersla á leitarvélabestun og ný uppsetning á valmyndakerfinu. Þetta gefur meiri möguleika á stjórnun og uppsetningu veftrés. Einnig hefur kerfið verið gert ennþá einfaldara, komið nýtt myndasafn, nýr ritill og búið að bæta við tengingum við til dæmis Facebook og Twitter.  Kerfið er nú mun hraðara í vinnslu og hleðslu á vef sem og með þægilegra viðmót fyrir vefstjóra.

Veftré

Veftré MoyaHelsta breytingin er nýtt veftré.  Í stað gömlu valmyndarinnar er komið veftré sem býður uppá að færa til valmyndarhnappa með "drag&drop".  Hægt er að fela valmyndarhnapp og vísa honum á þann stað sem þarf.  Að sjálfsögðu eru ennþá hreinar slóðir í Moya og aukin stjórn á þeim eiginleika fæst með valmyndarkerfinu.  Kominn er sérstakur flipi til að fylla inn upplýsingar fyrir SEO og meiri möguleikar á tengingu valmyndarhnapps við innihald vefs.

Kubbar

KubbastjórnunSá eiginleiki að setja sérsniðin box í hliðarnar á vefsíðu hafa fengið nafnið "kubbar".  Kubbastjórnun bíður uppá að búa til sér box t.d. fyrir auglýsingar, mynd augnabliksins, síður, kannanir og fleira.  Skemmtilegasta virknin er sennilega sú að geta sett hreint html beint í hliðarrein.  Þannig er hægt að taka t.d. Facebook box og setja þau í hliðarrein.  Kubbastjórnun bíður uppá uppröðun á boxum með "drag&drop".

Myndasafn

MyndastjórnunMyndasafnið hefur loksins fengið þá athygli sem það átti skilið.  Með ítarlegri stjórnun á albúmum og staðsetningu þeirra er hægt að leika sér endalaust með hlekkjum og staðsetningu.  Kerfið sér sjálft um að vinna myndirnar í réttar stærðir og birta þær á vefnum.  Vefstjóri getur haft áhrif á hvernig smámyndir birtast og þá hvað af myndinni birtist.  Hægt er að hlaða upp mörgum myndum í einu og allt utanumhald er eins og best verður á kosið.

Ritill

RitillinnNýr öflugur ritill var settur í Moya 1.15 sem býður upp á allar helstu aðgerðir eins og að setja inn myndir og myndbönd með texta sem og öll almenn textavinnsla.  Það sem gerir nýja ritilinn sérstakan er að Stefna hefur smíðað inn í hann sína eigin útgáfu af hlekkjakerfi sem gerir stjórnandanum kleift að hlekkja beint í síður, myndir, fréttir, skjöl eða í veftré á mjög einfaldann hátt.

Skráarsvæði

Skráarsvæði Skráarsvæðið er nú orðið meira innbyggt inn í allar aðgerðir og hægt er að nálgast efni á fleiri en einn máta .  Skráarkerfið er með mjög einfalt og þægilegt viðmót í útliti sem flestir kannast við.  Hægt er að búa til möppur og hlaða mörgum skjölum og myndum upp á svæðið í einu.  Auk þess bíður skráarkerfið upp á aukna stjórn á skrám, s.s. breyta textaskrám, endurvinna myndastærðir og færa til gögnin.

Endilega hafið samband ef þið viljið fá frekari kynningu á nýju útgáfunni.

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570