Sérlausnir

Stefna hefur smíðað fjölmörg kerfi og orðið sérlausnir nær best að vera samheiti fyrir allar þær tegundir af lausnum sem Stefna hefur smíðað. 

Sérlausnir

Sérlausnir StefnuStefna hefur smíðað fjölmörg kerfi og orðið sérlausnir nær best að vera samheiti fyrir allar þær tegundir af lausnum sem Stefna hefur smíðað.  Flaggskipið er Moya vefumsjónarkerfi sem hefur í gegnum árin verið miðja alls sem er smíðað.  Allar lausnir sem eru settar í gang eru með grunntengingu við Moya.  Beinast liggur við að benda á Vefverslunina en hún er smíðuð sem hluti af Moya.  En einnig eru óljósari tengingar sem þó nýta grunninn og að sjálfsögðu reynsluna sem liggur að baki smíði á vefumsjónarkerfi.  Þar eru meðal annars kerfin sem hægt er að skoða nánar um hér til hliðar.

Meðal annarra sérlausna sem Stefna hefur smíðað er:

  • SPList kannanakerfi.  SPList er notað til að senda rafrænar kannanir á póstlista.  Hægt er að blaðsíðuskipta könnunum, senda ítrekanir, keyra niðurstöðu í SPSS, Excel eða skoða í HTML.
  • Matartorg bókunarkerfi fyrir mötuneyti í grunnskólum.  Matartorg heldur utanum mataráskriftir, dagvistun barna og hressingar.
  • Bílabókunarkerfi sem heldur utanum bílaleiguflotann og gefur fullkomna stjórn á verðleggingu miðað við bílaflokk, tímabil og stað.
  • Íbúðabókanir þar sem hægt er að leigja út íbúðir, herbergi eða jafnvel hús.  Kerfið heldur utanum hvaða íbúð er í leigu á hverjum tíma og allar bókanir sem koma inn í gegnum vefinn.
  • Bókunarkerfi og skráningarvélar sem hafa verið smíðaðar skipta tugum.  Til dæmis skráningarkerfið fyrir Röddina og Söngskóla Maríu.  Bókanir á gistiheimili, pizza pantanir, pantanir fyrir veisluþjónustu og panta borð í sal svo eitthvað sé nefnt.
  • Stimpilklukkukerfisem heldur utanum viðveru einstaklinga
  • Matarbakkinn gerir fyrirtækjum kleift að panta mat fyrir starfsmenn í gegnum netið.
  • TÍM er mjög öflugt kerfi sem heldur utanum skráningar barna í tómstundir og íþróttir.  Kerfið býr til stundatöflu útfrá því sem er pantað, heldur utanum kostnað og gefur afslátt miðað við systkinaafslátt og tómstundaávísanir.

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570