Bílaleigukerfi
Eftir áralanga notkun á bílabókunarvél á vefnum holdur.is og ras.is var ráðist í gerð nýrrar bílabókunar. Tekin voru saman atriði í samráði við Höldur og smíðuð endurbætt og fullkomnari bókunarvél. Bókunarvélin var sett m.a. upp á vefnum www.askjacarrental.is með frábærum árangri.
Mun meiri stjórnun og frjálsleiki fæst með nýju bókunarvélinni og fékk hún mun fullkomnara og aðgengilegra viðmót. Hægt er stjórna verði pr. bíl, pr. tíma, pr stað. Stjórnandi býr til flokka, farartæki, aukahluti, staði og pickup staði. Fyrir utan umfangsmikla verðskrá er einnig hægt að stilla skilagjöld , hafa mismunandi gjöld miðað við skilastað og taka út notkunarskýrslu. Einnig er tenging við kortagátt til að bókunarvélin geti tengst við kortaþjónustu sem yfirfer kortin og sér um meðhöndlun kreditkorta og greiðslna.

Íbúðaleiga
Stefna smíðaði leigukerfi fyrir íbúðir og jafnvel heilu húsin ef því er að skipta fyrir siglo.is. Kerfið heldur utanum húseignir, íbúðir, hvað er innifalið í leiguverði og leiguverð pr íbúð, pr. tímabil. Öflug leitarvél er í kerfinu sem gerir manni kleift að leita að tegund fasteignar, fjölda svefnherbergja og fjölda svefnrýma. Einnig er hæt að setja verðþak á leitina ef maður er að leita að íbúð á vissu verði. Kerfið heldur utanum leigutíma þannig að ekki er hægt að tvíbóka íbúðir. Notandinn getur skoðað íbúðir, myndir og upplýsingar um þær. Hann getur séð hvenær íbúðin er laus og sent inn pöntun fyrir vissa daga. Stillanlegt er hversu löng leigutímabilin eru. Stjórnandi vefs fær tölvupóst þegar bókanir berast. Hann getur farið inní kerfið, skoðað bókanir og raðað bókunum eftir einstaklingum eða fengið upp lista pr fasteign til að skoða bókanir á henni.

Önnur bókunarkerfi
Fjölmörg önnur bókunarkerfi hafa litið dagsins ljós, s.s. bókanir á herbergi fyrir gistiheimili, bóka borð í sal á Greifanum og bóka rútuferðir hjá Bustravel og Sterna. Fyrir utan venjulegu rútuferðirnar þá er Sterna einnig með sérsmíðað kerfi þar sem hægt er að bóka ferðir frá og til og jafnvel hluta af ferðinni og er þá verð miðað við hvar þú ferð af stað, hvar þú endar og í hvaða aldurshóp þú ert.
Stefna Hugbúnaðarhús sérhæfir sig í að sérsmíða og aðlaga kerfi að þörfum
viðskiptavinar.
Leitið tilboða hjá sérfræðingum Stefnu fyrir ykkar lausn.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband