Hugbúnaðarkerfið Matarbakkinn er hannað og smíðað af Stefnu.
Matarbakkinn er vefbókunarkerfi sem auðveldar veisluþjónustum og veitingastöðum að halda utan um pantanir á matarbökkum. Fyrirtæki geta pantað hádegis og kvöldmat í gegnum vefinn á auðveldan og fljótlegan hátt. Fyrirtækið fær staðfestingu á pöntun og fær matinn sendan til sín á áætluðum tíma. Matarbakkinn gefur betri yfirsýn yfir sendingar, hækkar þjónustustigið, einfaldar ferlið, fækkar símtölum og auðveldar innheimtuferli.
Meðal notenda Matarbakkans er Lostæti, veislu- og veitingaþjónusta á Akureyri en meginstarfsemi fyrirtækisins er að framleiða og dreifa tilbúnum mat pöntuðum af matseðli til fyrirtækja og ýmissa hópa.
Lostæti hefur notað Matarbakkann í nokkur ár og eftirfarandi er umsögn Ingibjargar Ringsted, starfsmanna- og fjármálastjóra Lostætis um kerfið.
„Matarbakkinn er glæsilegt dæmi um þá möguleika sem veflausnir Stefnu bjóða upp á og hvað starfsmenn Stefnu geta töfrað fram úr erminni. Þjónustan sem við höfum fengið á öllum stigum hefur verið frábær og ótrúlega hröð“.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband