Tómstundir, Íþróttir og Menning eða TÍM er skráningarkerfi sem heldur utan um þátttöku barna í skipulögðu íþrótta-og tómstundastarfi.
Kerfið er hannað til þess að auðvelda foreldrum, þjálfurum, íþróttafélögum og sveitarfélögum að halda utan um iðkendaskrána og er rukkunin gerð með einum sameiginlegum greiðsluseðli. Foreldrar geta skráð börnin sín í íþrótt eða tómstund með því að velja viðeigandi þætti. Um leið og valið er þá fyllist viðkomandi valmöguleiki út í stundaskrá, þannig að foreldri sér strax hvort einhverjir árekstrar á tómstundum er að ræða. Foreldrar og börn fá æfingatöfluna á einu blaðið sem hægt er að prenta út. Kerfið heldur einnig utanum kostnaðinn og birtir hann með tilliti til hvatapeninga og systkinaafsláttar.
Þjálfarar og aðrir sem sjá um íþróttastarfið og tómstundirnar fá þægilegt yfirlit yfir þáttakendur, þeir fá einnig mætingarlista og bókhaldið fær sitt svæði til að halda utanum greiðendur og kostnað.
TÍM kerfið var unnið í samvinnu við sveitarfélagið Skagafjörð.

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband