SPList

SPList er vefkerfi fyrir skoðanakannanir af ýmsu tagi, þar sem hanna má kannanir, birta þær og leggja fyrir markhópa.  Gögnum er safnað saman og

SPList

Kerfi til að senda út rafrænar kannanirSPList er vefkerfi fyrir skoðanakannanir af ýmsu tagi, þar sem hanna má kannanir, birta þær og leggja fyrir markhópa.  Gögnum er safnað saman og niðurstöður birtar á einfaldan máta. SPList gerir þeim er lágmarksþekkingu hafa á tölvuvinnu kleift að hanna, leggja fyrir og skoða niðurstöður kannana.

Viðmót kerfisins hefur verið hannað með einfaldleika og og hagkvæmni að leiðarljósi. Til að mynda má nefna notkun AJAX tækninnar til að hlaða inn breytingum á listum jafnóðum, í stað þess að hlaða inn öllum listanum í hvert sinn er eitthvað breytist. Í þessu felst umtalsverður tímasparnaður þar sem netumferð er haldið í lágmarki.

Þeir sem eru að gera vefkannanir er úthlutuð eigin notendanöfn og aðgangsorð. Þá geta þeir skráð sig inn á sitt eigið svæði á vefþjónum Stefnu, skráð og lagt fyrir kannanir og fylgst með niðurstöðum jafnóðum og svör berast. Þá er einnig í boði útflutningur gagna í Excel og SPSS sniði.

Leggja má vefkönnun fyrir rafrænt með tölvupósti, eða fá miða með notendanöfnum og aðgangsorðum til útprentunar sem síðar má senda með hefðbundnum bréfpósti.  Fljótlegt er að skrá þátttakendur kannanna, hvort sem netfangalistar eru fluttir inn, eða með innslætti fjölda þátttakenda. Þátttakendum má skipta í hópa ef svo ber undir.

Könnunum er hægt að skipta niður í hluta, s. s. ákveðinn fjöldi spurningaflokka birtur í einu, og fjöldi spurninga í hverjum flokki. Þetta auðveldar sem og flýtir fyrir birtingu viðameiri kannanna.  Flokkum, spurningum og undirspurningum má endurraða að vild hvenær sem er.

Fyrir frekari upplýsingar um SPList er hægt að hringja í síma 464-8700 eða senda inn fyrirspurn.

Hafnarstræti 97 5. hæð | 600 Akureyri | Hamraborg 12 | 200 Kópavogi | s. 464 8700 | f. 464 8701 | e. stefna@stefna.is | Kt: 520903-2750 | Vsk: 81570