Vinnubók er öflugt verkefna- og tímaskráningarkerfi sem byggir á open source lausninni dot Project og hefur mikla möguleika í utanumhaldi og stjórnun verkefna. Vinnubókin er veflausn þannig að það þarf ekki að keyra upp forrit í tölvunni og hún er aðgengileg úr hvaða tölvu sem er í gegnum vafra.
Vinnubókin er allsherjar verkfæri sem er notað til að halda utan um stór sem smá verkefni frá upphafi til enda. Allt frá því að verkefnið er á teikniborðinu eða í tilboðsgerð, í gegnum allt vinnuferlið, þar sem margir aðilar koma að hinum ýmsu hlutum verkefnisins og alveg að tímanum þar sem verkefnið er búið og tími til að taka út skýrslu sem sýnir hvernig verkefnið kom út. Hægt er að brjóta verkefni niður í smærri einingar og setja starfsmenn á viðeigandi einingar. Verkefni geta verið tengd og hægt er að fylgjast með þróun verkefnis með prósentum og hversu mikill tími hefur farið í það.
Vinnubókin er einnig mjög góð í öllu utanumhaldi og tímastjórnun starfsmanna, þar sem þeir "stimpla sig inn" á þau verkefni sem eru á listanum þeirra og skrá sig veika eða í fríi eftir því sem við á. Þannig fæst mjög nákvæmt yfirlit yfir það í hvað tíminn er nákvæmlega að fara og hægt að taka mið af því við framtíðar skipulagningu.
Kostir vinnubok.is eru:
- Fjölbreytni: Hentar mjög breiðum notendahóp
- Kemur skipulagi á flókna hluti
- Auðveldar utanumhald og yfirsýn
- Hámarkar nýtni á vinnutíma

Vefpóstur
Senda verkbeiðni
Hafa samband