Vefur Akraneskaupstaðar var opnaður nýlega eftir viðamikla og góða undirbúningsvinnu að hálfu stýrihóps verkefnisins. Á sama tíma var opnuð íbúagátt til að bæta rafræna þjónustu við íbúa Akraness þar sem þeir geta nú sótt um húsaleigubætur, leikskólapláss, byggingarlóð og heimaþjónustu.
„Persónuleg og góð þjónusta, snöggir í svörum, jákvæðir, lausnamiðaðir, stanslaus þróun og eftirfylgni. Þetta eru orð sem lýsa samskiptum Akraneskaupstaðar og Stefnu. Þeir fá okkar topp meðmæli og hlökkum til frekari samstarfs.“
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað
Vefur Akraneskaupstaðar fékk tilnefningu til vefverðlauna SVEF 2014 í flokki opinberra vefja og hlaut verðlaun sem besti sveitarfélagavefurinn í úttekt Innanríkisráðuneytisins undir yfirskriftinni „Hvað er spunnið í opinbera vefi?“.
Vefurinn hefur tekið stakkaskiptum og skartar nú breyttu útliti og breyttum áherslum. Meðal annars má þar nefna:
Auk þess er vefurinn nú að sjálfsögðu skalanlegur til að hámarka nytsamleika hans fyrir notendur, óháð þvi hvort fólk kýs að gera það í tölvu, spjaldtölvu eða síma.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700