19jan
Stefna hugbúnaðarhús hefur veitt ráðgjöf og séð um uppsetningu á frjálsum og opnum hugbúnaði (open source) um árabil.
Sjá meira.
Frjáls og opinn hugbúnaður hefur verið í örum vexti um allan heim og er nú viðurkenndur sem góður kostur við val á lausnum í upplýsingatækni. Opin hugbúnaður byggist á forritunarkóða sem höfundar hafa valið að gera opinberan og aðgengilegan fyrir alla. Stefna hefur mikla og góða reynslu af Linux stýrikerfinu, Apache vefþjóninum,PHP, MySQL gagnagrunninum auk fleiri forrita.

Meðal verkefna sem Stefna hefur aðstoðað á þessu sviði er uppsetning á Linux netkerfi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Um er að
ræða disklausar útstöðvar í skólaumhverfinu sem notaðar eru til vefskoðunar og verkefnavinnu nemenda. Þá eru fjölmargar tölvur
kennara komnar alfarið yfir á Open Source umhverfið og keyra m.a. Ubuntu stýrikerfið og Open Office ritvinnslupakkann og Thunderbird póstforritið. Í
smíðum er nú umsjónarhugbúnaður sem og fram fer aðlögun kerfis og útstöðva.
Stefna hefur sett upp, þjónustar og hýsir fjöldann allan af opnum hugbúnaði.
Þar á meðal er:
- Moodle námsumhverfið
- DotProject verkumsjónarkerfið
- Póstsíur til að verjast ruslpóstum og vírusum
- Vafravélar - Kiosk vélar ætlaðar til að vafra á netinu
- Vanilla, phpBB, PunBB ofl. spjallborð
- Wiki kerfi
- Asterisk símalausnir
- Open Source vefumjónarkerfi s.s. Joomla, Drupal og Wordpress

Það er ekki hægt annað en að hrósa starfsmönnunum fyrir góð og vönduð vinnubrögð.