• Búseti kominn í nýtt kerfi


    Búseti leitaði til Stefnu með smíði á nýrri heimasíðu.  Mikil áhersla er lögð á að fólk geti farið á síðuna, skoðað upplýsingar um íbúðir og gert tilboð.  Íbúðakerfið á buseti.is er skipt í leiguíbúðir sem allir geta gert tilboð í og svo búsetaíbúðir sem einungis meðlimir í Búseta geta gert tilboð í.


  • Stefna flutt í nýtt húsnæði


    Við erum fluttir yfir í nýtt og stórglæsilegt húsnæði í Hafnarstræti 97,
    fjórðu hæð í Krónunni.
    Bjóðum alla velkomna í heimsókn á nýja staðinn. 

     stefna_640 


  • SkSiglo uppfærður og útlitsbættur

    Við opnun vefsins
    Nýr vefur sksiglo.is var opnaður í dag, en það var Guðný Ósk Friðriksdóttir eiginkona Steingríms Kristinssonar sem opnaði vefinn. Vefurinn er sá fjórði í röðinni hjá Steingrími en sá fyrsti kom út árið 1998.
    En á vordögum þáði Steingrímur tilboð Rauðku ehf um að stofnað yrði einkahlutafélag um rekstur heimasíðunnar og að  stofnsett yrði Ljósmyndasafn Siglufjarðar og má sjá afrakstur þess á síðu þessari. Tilgangur vefsins sksiglo.is er að halda utan un ljósmyndasafnið og koma upplýsingum um hina ýmsu atburði. 

  • Ný heimasíða Vodafone


    Vodafone á Íslandi er fjarskiptafyrirtæki sem leggur áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini sína. Starfsmenn Vodafone eru um 350 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp. GSM þjónusta Vodafone nær til 98% landsmanna og með samstarfi við Vodafone Group, eitt öflugasta fjarskiptafyrirtæki í heimi.   Lesa meira

  • ECLAT kynning í Lissabon 27. október

    Nú er komið að lokum ECLAT samstarfsverkefni Stefnu og útflutningsráðs Portúgals, Lettlands og Búlgaríu. Kynningin fer fram í Aberta háskólanum í Lissabon, Portúgal 27. október næstkomandi. Lesa meira

  • 17 vefir í loftið í ágúst!


    Starfsmenn Stefnu hafa haft nóg fyrir stafni að undanförnu að taka á móti nýjum viðskiptavinum í Moya vefumsjónarkerfinu. Í ágúst voru opnaðir hvorki meira né minna en 17 vefir í Moya og það af öllum stærðum og gerðum. Meðal nýrra viðskiptavina sem hafa valið að fela vef sinn í hendur Moya eru ASK Arkítektar, Tölvuskólinn iSoft Þekking og sveitarfélagið Svalbarðsströnd. Margir viðskiptavinir Stefnu kjósa auk þess að vera með Innri vef í Moya. Meðal þeirra eru Samherji, Höldur og Fjallabyggð. Innri vefir eru lokaðir öllum nema starfsfólki viðkomandi félaga þar sem þeir hafa aðgang að gögnum, samskiptum og viðeigandi upplýsingum er viðkemur starfi þeirra eða fyrirtækisins.
    Í dag eru um 250 ánægðir viðskiptavinir Stefnu að nota Moya vefumsjónarkerfi. Starfsmenn Stefnu bjóða nýja viðskiptavini velkomna í hópinn og óska til hamingju með nýja vefi sína.

Fréttir



Framsetning efnis

Stefna ehf, Hafnarstræti 97 4. hæð - 600 Akureyri, Sími: 464-8700 - Fax: 464-8701 - Email: stefna@stefna.is, Kt: 520903-2750, Vsk: 81570
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning