Hugbúnaðarkerfið Matarbakkinn er hannað og smíðað af Stefnu.
Matarbakkin er vefbókunarkerfi sem auðveldar veisluþjónustum
og veitingastöðum að halda utan um pantanir á matarbökkum. Matarbakkinn gefur betri yfirsýn yfir sendingar, hækkar þjónustustigið, einfaldar
ferlið, fækkar símtölum og auðveldar innheimtuferli.
Meðal notenda Matarbakkans er Lostæti, veislu- og veitingaþjónusta á Akureyri en meginstarfsemi fyrirtækisins er
að framleiða og dreifa tilbúnum mat pöntuðum af matseðli til fyrirtækja og ýmissa hópa.
Lostæti hefur notað Matarbakkann í nokkur ár og eftirfarandi er umsögn Ingibjargar Ringsted, starfsmanna- og fjármálastjóra Lostætis um
kerfið.
„Matarbakkinn er glæsilegt dæmi um þá möguleika sem veflausnir Stefnu bjóða upp á og hvað starfsmenn Stefnu geta töfrað fram úr erminni. Þjónustan sem við höfum fengið á öllum stigum hefur verið frábær og ótrúlega hröð“.



Starfsmenn Stefnu hafa unnið hratt og vel að breytingum og þróun á virkni sem við höfum beðið um.