Stefna hugbúnaðarhús, Moya vefumsjónarkerfi, vefsíðugerð, veflausnir

Internetið Internetið er orðinn einn helsti samskiptastaðall nútímans, og þá er nauðsynlegt að hafa

Fróðleikur

Internetið

Internetið er orðinn einn helsti samskiptastaðall nútímans, og þá er nauðsynlegt að hafa góða vefsíðu til að koma starfsemi sinni á framfæri til sem flestra einstaklinga. Vefsíðan er þinn starfsmaður á netinu og hann er í vinnu allan sólarhringinn, hann kynnir fyrirtækið þitt fyrir alheiminum og því er nauðsynlegt að hafa hraða og góða vefsíðu. Nærri 90% Íslendinga nota internetið daglega og góð vefsíða eykur möguleika þína á að kynna þig og fyrirtækið þitt fyrir almenningi.

 

Netvafrar

Það er staðreynd að vafrarnir sem eru notaðir í dag eru mismunandi og túlka ekki allir kóðann á bak við vefsíðurnar á sama hátt. Margir vefhönnuðir líta framhjá þessu vandamáli og hanna síður svo að þær virki rétt í einum vafra, en athuga ekki hvort að vefsíðan komi rétt út í öðrum vöfrum. Hjá Stefnu gerum við okkar besta til þess að vefsíðan virki í öllum helstu vöfrum sem notaðir eru í dag, og má þar nefna Internet Explorer 6.0, Mozilla Firefox, Opera 8 og Safari RSS fyrir Macintosh. Við mælum þó eindregið með Firefox þar sem hann túlkar kóðann á síðunum best.

 

Kökur (cookies)

Kökur eru skilaboð sem vefþjónar koma til vafrans sem þú notar (Internet Explorer, Firefox, Opera) þegar þú heimsækir vefsíðu. Vafrinn þinn geymir skilaboðin í lítilli skrá sem heitir cookie.txt. Þegar þú ferð á aðra síðu innan vefsíðunnar sendir vafrinn kökuna aftur á vefþjóninn. Kökurnar innihalda venjulega upplýsingar um síðustu heimsókn á vefsíðuna sem og upplýsingar sem þú kannt að hafa gefið upp s.s. nafn, áhugamál ofl.

Kökur er oftast notaðar til að fylgjast með vefnotkun. Þegar þú heimsækir vissar síður þá gefa þær þér köku sem er notuð sem nokkurskonar nafnspjald. Í hvert skipti sem þú kemur aftur á síðuna sendir vafrinn þinn kökuna aftur á vefþjóninn og nær þannig að halda utanum hversu margir eru að koma á vefsíðuna og hversu oft hver og einn kemur.

Kökur eru líka notaðar fyrir netverslun þannig að þegar þú verslar á ákveðinni síðu þá þarftu ekki að gefa upp persónulegar upplýsingar í hvert skipti og verslunin getur líka munað hvað var í körfunni þinni.

Öryggi: Aðeins þær vefsíður sem búa til kökurnar geta lesið þær aftur og auk þess taka kökur ekki við upplýsingum nema þeim sem þú gefur upp á síðunni. Að taka við köku gefur vefþjóninum (vefsíðunni) á engann hátt aðgang að tölvunni þinni eða nokkrum persónulegum upplýsingum að undanskyldum þeim sem þú hefur gefið upp á vefsíðunni.
Þó má geta þess að möguleiki er að komast framhjá vörnum með að nota ActiveX eða Java Applet, en notandinn verður að samþykkja notkun þessara tóla. Þetta er þó undartekningartilfelli og er ekki talin mikil hætta í dag.

Ekki er hægt að keyra kóða úr kökum eða virkja vírus í gegnum kökur.

 

Aðgengi Fatlaðra á Internetinu

Gott aðgengi á heimasíðu er eitthvað sem flestir átta sig á að þarf að vera vel úr garði gert. Það er þó hægt að ganga lengra og gera heimasíðuna aðgengilega fyrir fatlaða. Þá erum við að tala um fólk sem þjáist af lesblindu, er alveg blint eða á við einhverja hreifihömlun að etja.
Fyrir þá sem eru litblindir eða með aðra sjónörðulgeika getur verið nauðsynlegt að stækka letur vel og jafnvel breyta bakgrunni og uppsetningu leturs. Þannig er hægt að hafa t.d. svartan eða bláan bakgrunn og stóran hvítan texta. Til þess að þetta sé hægt þarf heimasíðan að vera rétt skrifuð eða í vefumsjónarkerfi sem styður þessa eiginleika.

Moya vefumsjónarkerfi gerir það og í leiðinni er heimasíðan orðin aðgengileg blindum, sem með hjálp skjálesara er hægt að vafra um heimasíður með því að gefa raddskipanir. Skjálesarinn les svo upp af síðunni og þá er mikilvægt að lesið sé upp í réttri röð og einungis þann texta sem birtist á síðunni.

Ef síða er ekki rétt sett upp getur einstaklingurinn lent í því að fá upplestur úr kóðanum á bakvið síðuna áður en texti síðunnar er lesinn. Texti síðunnar væri þá heldur ekki í réttri röð. Þetta er að sjálfsögðu mjög hvimleitt og leggjum við hjá Stefnu mikla áherslu á það að vinna heimasíður okkar þannig að þær séu aðgengilegar og þægilegar fyrir sem flesta.

Framsetning efnis


Promens hefur notað vefumsjónarkerfið Moya fyrir vefi sína í fjórum löndum.
Hilmar Guðmundsson
Promens
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf