Stefna hugbúnaðarhús, Moya vefumsjónarkerfi, vefsíðugerð, veflausnir

Fyrirtækið var stofnað þann 9. september 2003 og er í eigu starfsmanna fyrirtækisins og Samvirkni. Starfsmenn Stefnu eru átta talsins í dag og

Upplýsingatæknisetur

Fyrirtækið var stofnað þann 9. september 2003 og er í eigu starfsmanna fyrirtækisins og Samvirkni. Starfsmenn Stefnu eru átta talsins í dag og hefur fyrirtækið náð góðum árangri með vefumsjónarkerfið Moya, veflausnarforritið Matartorg og vefkönnunarkerfið SPList. Stefna lagði frá upphafi áherslu á víðtæka þjónustu á sviði upplýsingatækni, verslun og hugbúnaðarþróun á sviði veflausna. Auk þess rak það Tölvuskólann Stefnu. Í dag einbeitir það sér eingöngu að hönnun, þróun og sölu á hugbúnaði.

Starfsmenn Stefnu koma úr öllum áttum tölvugeirans og hefur það átt stóran þátt í hve vel hefur tekist upp við þróun og sölu á vefumsjónarkerfinu Moya. Frá upphafi hefur Stefna keppt að því að vinna sér inn traust viðskiptavina sinna með áreiðanleika, þjónustulund og hugvitssömum lausnum á vandamálum.
Þó að fyrirtækið sé ungt að árum, þá hefur áralöng reynsla starfsmanna orðið til þess að Stefna er nú þegar orðið rótgróið fyrirtæki með marga öfluga og hliðholla viðskiptavini. Einkenni Stefnu eru persónuleg og góð þjónusta, vönduð vinnubrögð og við vinnum hratt og vel að úrlausnum vandamála.

Framsetning efnis


Ég mæli hiklaust með heimasíðugerð þeirra og því kerfi sem þeir hafa upp á að bjóða.
Sigríður Marteinsdóttir
Gistiheimili Sigríðar
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Til fyrirmyndar