Stefna er sífellt að leita að öflugum starfsmönnum sem hafa brennandi áhuga á hugbúnaðarþróun. Fyrirtækið býður upp á gott starfsumhverfi þar sem starfsfólk tekur virkan þátt í starfsemi fyrirtækisins og fær að njóta sín.
Markmið fyrirtækisins er að hafa ætíð á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem býr yfir faglegri þekkingu til að tryggja gæði þjónustunnar. Lögð er rík áhersla á markviss sjálfstæð vinnubrögð, skýra ákvörðunartöku og frumkvæði í starfi.
Allar umsóknir um starf eru geymdar í sex mánuði en síðan er þeim eytt nema óskað sé eftir framlengingu gildistíma. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.



Eftir einn stuttan fund með Stefnu mönnum, þá komst ég af stað og mér finnst ég vera orðinn nokkuð sjálfbjarga í umsjón með vefnum.