Matartorg er hugbúnaður þar sem forráðamenn geta skráð börn í mat.
Hugbúnaðurinn vistar skráningarnar í gagnagrunn, og gerir stjórnendum skólanna kleift að hafa umsjón með skráningu í mat í mötuneyti á vef. Til eru 2 notendahópar: stjórnendur og forráðamenn. Stjórnendur (ritarar) geta gert eftirfarandi:
- Búið til, breytt og eytt forráðamönnum og þeirra börnum
- Breytt stillingum síns skóla
- Tekið lista úr stundvísi og sett inn í Matartorgs grunninn
- Búið til, breytt og eytt matseðlum
- Skráð nemendur í mat fyrir forráðamenn
- Einnig er hægt er að stilla eftirfarandi fyrir forráðamenn
- Hvort viðkomandi skuldar
- Hafi tölvu
- Sé undanþeginn lágmarki skráninga
- Nafn, notandanafn, og lykilorð
- Tekið lista útúr kerfinu
- Fjöldatölur eftir dögum
- Nafnalista fyrir hvern dag eða fyrir heilan matseðilstíma (t.d. mánuð)
- Matseðla til handmerkingar, yfir alla þá sem eru merktir með "Hefur ekki tölvu"
- Gert upp matseðil (setja inní rukkunarkerfi)
- Breytt lykilorðinu sínu
Forráðamenn hafa eftirfarandi möguleika:
- Skráð börn í mat
- Merkt er við hvaða daga barn ætlar að vera í mat
- Skoðað fyrri skráningar
- Breytt lykilorðinu sínu
- Prentað út matarmiða (sé það notað í skólanum)
Kerfislýsing Skólavistunar
Skólavistun (vistun barna) er vefbókunar- og umsýslukerfi. Kerfið er hannað til að halda utan um allar bókanir, skráningar og kostnað fyrir hvert frístundaheimili. Skólavistunarkerfið býður uppá mikla möguleika til að taka út skýrslur og yfirlit yfir allar þær upplýsingar sem það hefur að geyma. Vistun gerir foreldrum kleift að skrá börn í skólavistun á vissum tímum. Vistun gerir stjórnendum kleift að hafa umsjón með skráningunni.
Til eru 2 notendahópar: stjórnendur og forráðamenn. Stjórnendur (ritarar) geta gert eftirfarandi:
- Stofnað, breytt og eytt vistunardögum (Tímabil vistunardaga er breytilegt)
- Möguleiki að sjá tímafjölda og breyta honum og kostnaði
- Skráð vistun fyrir forráðamenn
- Valið sjálfgefinn byrjunar- og endatíma vistunardaga
Forráðamenn geta gert eftirfarandi:
- Skráð börn í vistun
- Valið um síðdegishressingu
- Eftir skráningu er heildarkostnaður sýndur, og forráðamaður þarf að samþykkja
- Stillt inn sjálfgefinn byrjunar- og endatíma fyrir hvert barn
- Prentað út valin atriði
- Prentað út áður en það er valið


Það er ekki hægt annað en að hrósa starfsmönnunum fyrir góð og vönduð vinnubrögð.