Stefna hugbúnaðarhús, Moya vefumsjónarkerfi, vefsíðugerð, veflausnir

Hér má finna lýsingu á þeim einingum sem hægt er að velja úr við uppbyggingu heimasíðu. Auglýsingar Leyfir þér að birta auglýsingar í haus eða

Kerfiseiningar

Hér má finna lýsingu á þeim einingum sem hægt er að velja úr við uppbyggingu heimasíðu.

Auglýsingar

Leyfir þér að birta auglýsingar í haus eða hliðarreinum síðunnar. Auglýsingunum er raðað upp eftir hentugleika á fyrirfram ákveðnum svæðum og sleginn inn slóð sem þær eiga að vísa á.

Brauðmolar

Breadcrums er bein tilvísun í söguna um Hans og Grétu. Brauðmolar eru oftast hafðir á mjög sýnilegum stað á heimasíðunni, án þess þó að verða of áberandi. Hlutverk þeirra er að sýna notandanum hvar hann er og jafnframt sýna honum leiðina til baka að upphafssíðu.

Efnisflokkar

Með efnisflokkum er hægt að flokka fréttir niður eftir efni s.s. Innlent, Erlent, Tækni&Vísindi ofl. Einnig er hægt að nota efnisflokkana í flokkun á viðburðum í dagatalinu.

Fréttir

Mjög öflugt fréttakerfi er í Moya sem býður uppá flokkun niður á deildir sem og efnisflokkun. Þá er fréttakerfið einnig tengt við dagatalið og póstlistakerfið. Fréttakerfið býður uppá sjálfvirka birtingu og það er hægt að setja dagsetningu fréttar aftur í tímann.

Fyrirspurnir

Mikilvægt er að viðskiptavinir geti sent inn fyrirspurn án vandkvæða. Fyrirspurnarkerfið býður notandanum að senda inn fyrirspurn án þess að þurfa að opna póstforritið sitt. Þegar kerfið hefur sent fyrirspurnina á fyrirfram ákveðið póstfang geymir það afrit á vefnum þar sem vefstjóri hefur aðgang að.

Kannanir

Litlar skoðanakannanir sem gera umsjónarmönnum síðunnar kleift að spyrja gesti spurninga. Moya getur birt eina könnun pr. deild í einu. Gestir síðunnar haka í viðeigandi box og fá samstundis niðurstöðu könnunarinnar í prósentum og súluriti.

Leit

Leitareiningin gerir manni kleift að leita að stökum orðum eða setningum. Hægt er að flokka leitina eftir greinum, síðum, fréttum og/eða vefverslun ef hún er til staðar.

Myndaalbúm

Í myndaalbúmið er hægt að setja helstu gerðir stafrænna mynda. Myndaalbúmið er hægt að flokka í yfirflokka og undirflokka. Þægilegt er fyrir skoðendur að flakka um myndaalbúmin og skoða þær myndir sem í þeim eru. Fyrst er yfirlit með “thumbnails” þá er smellt á eina af myndunum og hægt að fletta með flettitakka. Ef smellt er á mynd í þriðja sinn fær viðkomandi upp fulla útgáfu af ljósmyndinni í nýjum glugga. Til að auðvelda upphal á myndum er hægt að þjappa þeim saman í Zip eða Rar og hala allt að 30mb upp í einu.

Myndbönd

Myndbútum er halað upp á mjög þægilegan hátt. Kerfið býður uppá að skýra myndbútinn og setja nánari lýsingu með. Myndböndin raðast upp eftir tímaröð og eru mjög aðgengileg fyrir notendur.  Kerfið breytir venjulegum myndbútum í flash og hægt er að fá flokkaskiptingu á myndböndin.

Notendakerfi

Hægt er að bæta við og breyta stjórnendum kerfisins.  Gefin eru réttindi á kerfiseiningar pr svæði og er þá t.d. hægt að gefa einum aðila leyfi á að skrifa fréttir á einu svæði en hann fær þá ekki að stjórna öðrum þáttum vefsins né heldur skrifa frétt á öðrum svæðum.

Póstlisti

Póstlistakerfið býður uppá þann möguleika að hafa marga póstlista í gangi í einu. Þegar notandi óskar eftir því að fara á póstlista einfaldlega skráir hann póstfangið sitt í viðeigandi reit og hakar í hvaða póstlista hann vill fara á. Stjórnendur síðunnar geta svo annað hvort sent beinan póst á póstlista eða sent frétt í gegnum fréttakerfið. Kerfið býður uppá handvirka skráningu og lestur póstfanga úr textaskrá

RSS lesari

Moya hefur mjög öfluga RSS veitu og lesara. RSS veita gerir öðrum síðum kleift að grípa fyrirsagnir frétta af síðunni og birta á sinni eigin síðu með tengil yfir á upprunalegu fréttina. Stjórnendur Moya síðunnar hafa sömuleiðis þann möguleika að grípa fréttir af öðrum síðum s.s. mbl.is og birta í sérstöku hólfi á sinni heimasíðu.

Síðukerfi

Að útbúa síðu í Moya er leikur einn. Síðukerfið býður uppá þægilegt notendaviðmót og gerir innsetningu og breytingar á upplýsingum að leik einum. Þegar vefstjóri hefur útbúið síðu og jafnvel skreytt hana með myndum, hakar hann í “setja í valmynd” og vistar. Þá er síðan einfaldlega komin á netið og einungis eftir að setja valmyndarhnappinn á sinn stað með örvatökkum.

Spjallborð

Fullkomið spjallborð með notendastjórn. Spjallborðið býður uppá marga möguleika og er einfalt í notkun. Hægt er að velja í upphafi um hvort aðgengi að spjallborðinu skuli vera opið eða læst með notendanafni og lykilorði.

 Starfsmenn

Birtir lista yfir starfsmenn fyrirtækisins. Býður þér möguleika á að setja inn nafn, símanúmer, netfang og margt fleira. Hægt er að flokka starfsmenn niður á deildir. Einnig er mögulegt að birta myndir af starfsmönnum.

Svæði

Moya bíður uppá svæðaskiptingu á vefum.  Þannig getur hvert svæði haft sína eigin valmynd, sitt eigið stílsnið og höfuðmynd.  Dæmi um svæðaskiptingu er vefur Brekkuskóla þar sem skólinn er á aðal svæðinu en svo hafa bekkirnir hver og einn sitt svæði með sínu efni.   Einnig býður svæðaskipur vefur uppá að hafa aðgreind myndaalbúm og aðgreindar fréttir eftir hverri deild fyrir sig.  Svæðaskiptur vefur býður uppá mjög mikla möguleika í aðgengishönnun og uppsetningu stærri vefa.

Teljari

Telur heimsóknir inn á síðuna, og birtir heildarfjölda heimsókna frá upphafi.  Fyrir stjórnendur síðunnar notar Moya awstats til að greina netumferð síðunnar. Þar eru mjög ítarlegar upplýsingar um hvaðan notendur koma, hversu lengi þeir voru á síðunni og hvað þeir voru að gera.

Veftré

Birtir einfalt yfirlit yfir allar síður og undirsíður vefsins til að auðvelda gestum að finna það sem þeir leita.

Vefverslun

Einföld vefverslun með helstu upplýsingum um vöru. Kaupendur safna vörum í körfu og gera upp heildarpakkann í lokin. Hægt er búa til vöruflokka og raða vörum niður í flokka. Hver flokkur getur haft einkennismynd og auðvitað er hægt að sýna mynd af hverri vöru fyrir sig. Einnig er hægt að tengjast secure svæði þannig að kaupandinn geti óhræddur verslað með kreditkorti sínu.

 Viðburðadagatal

Dagatalið er beintengt fréttakerfinu og býður notandanum uppá að setja inn viðburði eftir efnisflokkum og jafnvel hafa sérstaka liti fyrir hvern efnisflokk. Fyrir neðan dagatalið eru taldir upp næstu viðburðir og boðið uppá að skoða heildar lista flokkaðan eftir vikum eða mánuðum.

Framsetning efnis


Moya vefsíðukerfið er þægilegt í notkun og hefur uppfyllt allar mínar þarfir og óskir.
Halldór Jónsson
Team Ice
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Til fyrirmyndar