Sérhönnuð Kiosk Linux
dreifing þar sem einungis er hægt að nota Firefox til að vafra um internetið.
Uppsetningu er hagað þannig að ekki er hægt að breyta neinum stillingum, en þó er hægt að vafra um veraldarvefinn að vild.
Hægt er að gera einstaka stillingar í gegnum vefviðmót, en annars er aðeins hægt að komast inná vélina í gegnum SSH.
Kostir við uppsetningu af þessu tagi er sú að hægt er að keyra þessar vélar á almenningsstöðum s.s. skólum, bókasöfnum, kaffistöðum, flugteríum ofl.
Þessar vélar fá ekki vírusa, né fyllast af auglýsingaforritum, þannig að allt viðhald er í lágmarki.
Vafravélin getur keyrt á hvaða i586 örgjörva eða betri og hefur verið prófuð á 300mhz vélum með ágætis hraða.


