Stefna hýsir veflausnir sínar í fullkomnu kerfissrými Samvirkni. Mjög fullkomið kælikerfi og rafbakhjarlar tryggja rekstraröyggi ásamt innbrots og brunavörnum. Tekið er afrit af öllum Moya vefum og öðrum veflausnum Stefnu, einu sinni á sólarhring.
Lénahýsing og lénakaup
Íslensk lénaending .is
Internet á Íslandi hf., ISNIC, sér um skráningu léna undir þjóðarléninu .is, en öll lönd eiga sitt þjóðarlén sem endar á tveggja stafa auðkenni samkvæmt alþjóðlegum staðli. Auðkennið fyrir Ísland er "IS". Stefna aðstoðar viðskiptavini sína með umsóknir um skráningu léns til ISNIC.
Farið er eftir verðskrá Isnic við kaup á lénum.
Erlend lénaending .com/.net/.org
Stefna hýsir og aðstoðar fyrirtæki sem vilja hafa erlenda endingu á vefum sínum. Það er í flestum tilfellum mun ódýrara að vera áskrifandi af erlendum lénum, heldur en innlendum. Dæmi um aðila sem selur erlend lén er HeroDomains og er hægt að fá lén fyrir ca $12 á ári.



Ég mæli hiklaust með heimasíðugerð þeirra og því kerfi sem þeir hafa upp á að bjóða.