Stefna hugbúnaðarhús, Moya vefumsjónarkerfi, vefsíðugerð, veflausnir

Stefna hugbúnaðarhús hefur veitt ráðgjöf og séð um uppsetningu á frjálsum og opnum hugbúnaði (open source) um árabil. Frjáls og opinn hugbúnaður hefur

Frjáls og opinn hugbúnaður

Stefna hugbúnaðarhús hefur veitt ráðgjöf og séð um uppsetningu á frjálsum og opnum hugbúnaði (open source) um árabil. Frjáls og opinn hugbúnaður hefur verið í örum vexti um allan heim og er nú viðurkenndur sem góður kostur við val á lausnum í upplýsingatækni.  Opin hugbúnaður byggist á forritunarkóða sem höfundar hafa valið að gera opinberan og aðgengilegan fyrir alla.  Stefna hefur mikla og góða reynslu af Linux stýrikerfinu, Apache vefþjóninum,PHP,  MySQL gagnagrunninum auk fleiri forrita.

Meðal verkefna sem Stefna hefur aðstoðað á þessu sviði er uppsetning á Linux netkerfi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Um er að ræða disklausar útstöðvar í skólaumhverfinu sem notaðar eru til vefskoðunar og verkefnavinnu nemenda. Þá eru fjölmargar tölvur kennara komnar alfarið yfir á Open Source umhverfið og keyra m.a. Ubuntu stýrikerfið og Open Office ritvinnslupakkann og Thunderbird póstforritið. Í smíðum er nú umsjónarhugbúnaður sem og
fram fer aðlögun kerfis og útstöðva.

Stefna hefur sett upp, þjónustar og hýsir fjöldann allan af opnum hugbúnaði.
Þar á meðal er:

  • Moodle námsumhverfið
  • DotProject verkumsjónarkerfið
  • Póstsíur til að verjast ruslpóstum og vírusum
  • Linux servera og útstöðvar
  • Vafravélar - Kiosk vélar ætlaðar til að vafra á netinu
  • Vanilla, phpBB, PunBB ofl. spjallborð
  • Wiki kerfi
  • Asterisk símalausnir
  • Open Source vefumjónarkerfi s.s. Joomla, Drupal og Wordpress
Endilega hafið samband og fáið frekari upplýsingar um þjónustu Stefnu á þessu sviði.

Framsetning efnis

Sama hvaða vandamál hafa komið upp hvort sem það þurfti að forrita nýja hluti fyrir mig eða breyta gömlum voru svörin aldrei önnur en ekkert mál og svo var það bara gert.
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Til fyrirmyndar