Jens Einarssonritstjóri
Landsamband hestamannafélaga
Ég hef unnið við fréttavefi á Netinu síðastliðin tíu ár. Í margs konar vefumhverfi. Moya umsjónarkerfið er afar sveigjanlegt og býður upp á fjölbreytta möguleika. Það er þó fyrst og fremst þjónustuborðið sem skarar fram úr öllu sem ég hef áður kynnst í þessum bransa. Þjónustulund starfsmanna Stefnu og vilji til að leysa úr hvers manns vanda gerir það að verkum að maður getur ekki hugsað sér að leita annað.“
Arne Vagn OlsenForstöðumaður markaðs- og sölusviðs
Íslensk verðbréf hf.
"Íslensk verðbréf ákváðu snemma 2008 að kominn væri tími á nýja heimasíðu félagsins iv.is. Eftir töluverða eftirgrennslan var ákveðið að ganga til liðs við Stefnu um forritun heimasíðunnar enda fékk Stefna afar góð meðmæli þeirra sem við töluðum við.
Skemmst er frá því að segja að öll vinna Stefnu í kringum heimasíðuna var til fyrirmyndar, afar fagmannlega unnið af hálfu starfsmanna og þjónusta öll hin besta. Nú hefur síðan verið í loftinu í nokkra mánuði og ánægjulegt að segja frá því að þjónustustig félagsins hefur síst minnkað. ÉG get því óhikað gefið Stefnu mín allra bestu meðmæli í þessum efnum."
Jón Hrói Finnsson,þróunarstjóri
Fjallabyggð
"Við völdum Moya vefumsjónarkerfið meðal annars vegna notendavæns viðmóts og mikilla möguleika á viðbótum. Kerfið hefur staðið undir öllum okkar væntingum og þjónustan hefur farið fram úr björtustu vonum. Starfsmenn Stefnu hafa unnið hratt og vel að breytingum og þróun á virkni sem við höfum beðið um. Við höfum verið ánægð og sátt við val okkar á kerfi og samvinnuna við Stefnu frá upphafi"
Pétur Rúnar GuðnasonDeildarstjóri, Rafræn markaðssetning
Vodafone
Sérfræðingar Stefnu eru til taks þegar við þurfum á þeim að halda. Þeir hafa einstaka hæfileika til að tækla flókin verkefni á skjótan hátt og án þess að úlfaldi verði úr mýflugu. Þeir koma okkur sífellt á óvart með viðbragðsflýti þegar á reynir. Snögg viðbrögð þeirra haldast í hendur við möglunarlausar lausnir og góðan skilning á verkefnunum sem eiga vart sinn líka í hugbúnaðargerð á Íslandi. Stefna fær því okkar sterkustu meðmæli og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs við teymið fyrir norðan.
Promens.is
Promens.no
Promens.es
Promens.ca
Promens hefur notað vefumsjónarkerfið Moya fyrir vefi sína í fjórum löndum.
Þjónusta Stefnu ehf er til fyrirmyndar og kerfið hefur uppfyllt allar okkar væntingar.
Jökull BergmannUIAGM Fjallaleiðsögumaður
Sem eini faglærði fjallaleiðsögumaður landsins með meira en 10 ára þjálfun og prófaferli að baki geri ég mér fyllilega grein fyrir því hvað fagleg vinnubrögð snúast um og hvenær sú þjónusta sem að ég kaupi er fagleg. Í fæstum tilfellum er hægt að gera ráð fyrir að þjónusta hér á Fróni uppfylli þau skilyrði sem ég geri fyrir faglegum vinnubrögðum, en það hefur þó í einu og öllu átt sér stað í viðskiptum mínum við Stefnu og þeirra frábæra starfsfólk. Sama hvaða vandamál hafa komið upp hvort sem það þurfti að forrita nýja hluti fyrir mig eða breyta gömlum voru svörin aldrei önnur en ekkert mál og svo var það bara gert. Ég mæli eindregið með þjónustu Stefnu og þeir sem að hafa frekari spurningar um þeirra þjónustu eða virkni Moya vefumsjónarkerfisins geta haft samband við mig beint.
Þ
orgeir GunnarssonMývatnsstofa ehf.
það er með ólíkindum hvað þið eruð liprir hjá Stefnu, viðbragstími er nokkrar mínútur ef maður kvabbar á ykkur. Bara einu sinni hef ég ekki náð í starfsmann og hef ég hringt mikið, því getið þið trúað. Aldrei hef ég fengið annað en gott og hlýlegt viðmót hvort heldur það sé hjá símadömunni eða öðru starfsfólki. Það er ekki spurning að ég mun halda áfram að agitera fyrir ykkur og þá góðu þjónustu sem ég hef fengið hjá Stefnu.
Ingibjörg Ösp StefánsdóttirMarkaðs- og kynningafulltrúi
KEA
Í nóvember árið 2005 var ákveðið að ráðast í gerð nýrrar heimasíðu fyrir KEA. Nokkur af þeim vefumsjónarkerfum sem eru á markaðnum í dag voru skoðuð og þegar vegið var saman aðgegni, uppsetningarmöguleikar, verð og gæði stóð Moyan uppúr. Öll vinna við uppsetningu og viðhald vefsins hefur gengið samkvæmt áætlun og þrátt fyrir að nokkuð sé um sérsniðnar lausnir er viðhald og aðgengi að vefnum einstaklega þægilegt. Lipurð og þekking einkenna alla þjónustu sem Stefna veitir og get ég eindregið mælt með Moyunni sem vefumsjónarkerfi fyrir minni og stærri aðila.
Víðir Björnsson
NorðurskelVið Norðurskeljar menn höfum verið mjög ánægðir með heimasíðuna okkar og þá sérstaklega hvað það er þægilegt að vinna í henni. Einnig er þjónustan hjá Stefnu mjög góð.
Valdimar Olsen,Oddfellow
Moya vefsíðukerfið er ákaflega lipurt og þjált í meðförum. Þegar ég kom fyrst að því, hafði enga reynslu af vefsíðuumsjón, eða þekkingu á því sviði. Eftir einn fund með Stefnu mönnum, sem varði ekki nema uþb hálf tíma, þá komst ég af stað og mér finnst ég vera orðinn nokkuð sjálfbjarga í umsjón með vefnum, enda þótt ég sé vissulega ekki orðinn fullnuma í fræðunum.
Borghildur J. Kristjánsdóttir,Löður
Sem markaðstjóri Löðurs vil ég þakka Stefnu fyrir vönduð vinnubrögð við gerð nýrrar heimasíðu fyrirtækisins. Moya er einfalt og þægilet umsjónarkerfi að vinna með og gerir okkur fært á auðveldan hátt að halda uppi lifandi vef fyrir viðskiptavini okkar.
Ekki bara gott umsjónarkerfi heldur er þjónusta Stefnu til fyrirmyndar.
Benedikt Einar GunnarssonÓlafur Gíslason hf
Um nokkurra ára skeið höfum við notað Front Page forrit við gerð vefsíðna okkar hjá Ólafi Gíslasyni & Co hf og Rafborg ehf. Eftir að hafa séð vefsíðu Slökkviliðs Akureyrar ákváðum við að leita til Stefnu með uppsetningu nýrra síðna í kerfi þeirra og einnig hýsingu. Þeir fluttu fyrir okkur gömlu síðurnar á milli en það var gífurleg vinna sérstaklega við síðu Ó.G. & Co hf.
Þjónustan og viðmót var til fyrirmyndar og ekki á betra kosið. Ef eitthvað hefur komið upp á hefur það verið leyst bæði fljótt og vel og ábendingum tekið ljúfmannlega.
Jóhanna,Húnavatnshreppur
Þjónustan hefur verið í topp og kerfið hefur að mestu leyti verið eins og við viljum hafa það. Það er mjög auðvelt að sinna kerfinu því leiðirnar eru svo auðveldar. Það er gott fyrir svona fólk eins og mig sem eru ekki mjög glöggvir á tölvur.
Starfsmenn Stefnu hefur verið mjög þolinmóðir og náð að aðstoða okkur í þeim málum sem upp hafa komið hverju sinni.
I
nga RingstedFjármálastjóri
Lostæti
Heimasíðukerfið ykkar hefur komið mjög vel til móts við okkar þarfir. Þar sem við erum búin að prófa annað heimasíðukerfi þá teljum við okkur vera nokkuð dómbær á það hvernig Moya er að virka. Kerfið er mjög auðvelt í notkun og allar aðgerðir fljótlegar og í flestum tilfellum auðskiljanlegar. þjónustan ykkar er til fyrirmyndar, öllu reddað strax.
Við höfum ekki heyrt annað en ánægju hjá viðskiptavinum sem skoða síðuna. Það hefur að sjálfsögðu áhrif að geta unnið heimasíðuna jafnt og þétt og halda henni fallegri og aðgengilegri. Okkur hefur tekist það nokkuð auðveldlega.
Matarbakkinn er auðvitað glæsilegt afrek hjá ykkur. Þið eruð með snillinga þarna hjá ykkur í Stefnu.
Óhætt er að segja að kerfið hefur breyst mikið frá upphafsútgáfunni. Það var svo sem ekki við öðru að búast þar sem við og þið erum sameiginlega að þróa kerfið um leið og það er að fara í notkun. Við erum þó búin að tilkynna öllum að netkerfið sé komið í fulla notkun frá 1. des. Við notum það sem gagnagrunn fyrir reikningagerð og þurfum að gæta þess að allt komi inn í þennan gagnagrunn.
Þjónustan hjá ykkur á öllum þessum stigum hefur verið alveg frábær. Við Þorsteinn erum búin að vera í nokkuð stöðugu sambandi með eitt og annað og hann verið snöggur að finna leiðir til að laga og bæta við þeim atriðum sem þurft hefur.
Hildigunnur Svavarsdóttirskólastjóri
Sjúkraflutningaskólinn
Í byrjun ágúst sl. var farið þess á leit við tölvufyrirtækið Stefnu ehf að þeir ynni vefsíðu fyrir Sjúkraflutningaskólann, alfarið út frá þörfum hans. Starfsmennirnir brugðust skjótt við og einungis 5 vikum seinna var heimasíðan með vefumsjónarkefinu Moya tekin í notkun. Það er ekki hægt annað en að hrósa starfsmönnunum fyrir góð og vönduð vinnubrögð þar sem reynt var eftir fremsta megni að verða við þeim kröfum sem Sjúkraflutningaskólinn lagði upp með. Ennfremur voru þeir mjög hjálplegir við að finna bestu lausnina á þeim vandamálum sem upp komu og eru duglegir að hafa samband til að fylgja eftir hvernig gengur.
Að mínu viti er notendakerfið mjög þægilegt og býður upp á mikla möguleika. Með tilkomu kerfisins fyrir Sjúkraflutningaskóliann skapast aukin skilvirkni í starfi og er það jafnframt mjög vinnusparandi þar sem skriffinska og annað utanumhald minnkar til muna. Ég vil enn og aftur þakka starfsmönnum Stefnu ehf kærlega fyrir vel unnin störf!
Halldór Jónsso,Team Ice
Ég kynntist Moya vefsíðukerfinu í sumar. Var að leita eftir þægilegu en nokkuð öflugu vefsíðukerfi til að halda utan um upplýsingar, fréttir, myndir, myndbönd o.fl. um þátttöku í akstursíþróttum; kvartmílu o.fl.Móttaka, upplýsingar og kynning forsvarsmanna Stefnu vakti athygli mína og örvaði til frekara samstarfs. Moya vefsíðukerfið er þægilegt í notkun og hefur uppfyllt allar mínar þarfir og óskir.Samstarf við starfsmenn Stefnu hefur verið einstaklega gott og þeir hafa leyst úr öllum verkefnum fljótt og vel. Þeir eru áhugasamir um framþróun kerfisins og hlusta vel á ábendingar og/eða hugmyndir um nýjungar eða breytingar.Vefsíða mín hefur fengið mjög góðar viðtökur og jákvæð ummæli. Kerfið sjálft og starfsmenn Stefnu eiga þar stærstan


Við völdum Moya vefumsjónarkerfið meðal annars vegna notendavæns viðmóts og mikilla möguleika á viðbótum.