Leiðbeiningar vafrakökustefnuborða

Notkun á vafrakökum

Ef notuð eru utanaðkomandi tól sem búa til vafrakökur hjá notendum s.s. Google Analytics, SiteImprove eða samfélagsmiðladeilingar þarf upplýsa og fá samþykki fyrir slíkri notkun. Til þess má t.d. nota vafrakökuborða.

Hægt er að lesa ítarlega um vafrakökur á allaboutcookies.org

Við mælum einnig með að útbúin sé persónuverndarstefna fyrir vefsíðuna

 

Virkja kökuborða

Til að virkja kökuborða þarf fyrst að búa til síðu með vafrakökustefnu sem upplýsir um notkun þessarar vefsíðu á vafrakökum. Þessa síðu þarf svo að setja í veftréð. Vafrakökuborðinn er síðan virkjaður undir stillingum í Moya vefumsjónarkerfinu, en á hann þarf að setja texta og síðuna með nánari upplýsingar um vafrakökustefnu.

Það sem vafrakökustefnan á að innihalda er: hvaða kökur eru nauðsynlegar, hverjar ekki, hver er tilgangur þeirra, hverjir búa til kökurnar og hvernig má hætta notkun þeirra. Til að skýra notkun á kökum getur verið gott að setja upp töflu eða skrifa um hvert utanaðkomandi tól og þeirra kökur.

Á þessari vefsíðu, stefna.is, var ákveðið að lista upp allar kökur, tilgang og uppruna þeirra. Hér má skoða notkun á vafrakökum.

 

Dæmi um innihald vafrakökustefnu:

Vafrakökur:

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að tryggja sem besta upplifun af síðunni fyrir notendur. Kökurnar má flokka í 4 flokka, Nauðsynlegar, frammistöðu- og virkniauðgandi, tölfræðilegar, markaðssetning.

Vafrakökur eru upplýsingapakkar, sem netvafrar vista að beiðni vefþjóna. Vefþjónninn getur þá notað þessar upplýsingar frá vafranum til frekari vinnslu. Kökur geyma oft upplýsingar um stillingar notanda, tölfræði heimsókna, auðkenni innskráðra notanda o.fl. Kökur eru einnig oft nauðsynlegar til að geta boðið upp á ýmsa virkni og koma í veg fyrir árásir tölvuþrjóta. Vafrinn eyðir kökunni þegar líftími hennar rennur út. Hver kaka er bundin við þann vefþjón sem sendi kökuna og aðeins sá vefþjónn fær að sjá kökuna. Ef þú ert ekki ánægð/ur með notkun á einhverjum kökum á vefsíðunni getur þú lokað á þær eða eytt úr vafranum þínum. Gerir þú slíkt getur það hamlað virkni vefsíðunnar.

Til að stilla kökur í Google Chrome:

  1. Farið í "Customize and control Google Ghrome"
  2. -> Settings
  3. -> Advanced
  4. -> Content settings
  5. -> Cookies

Upplýsingar um hvernig stilla má aðra vafra má finna á vefsíðu um vafrakökur : allaboutcookies.org. Kökurnar sem þessi vefsíða notar eru eftirfarandi:

Nauðsynlegar kökur

Nauðsynlegar vafrakökur eiga allar uppruna sinn frá Stefna.is og eru notaðar til að birta vefsíðuna sjálfa: 

Kökur Uppruni Tilgangur
JSESSIONID, PHPSESSID, __atrfs Stefna.is  Virkni vefsíðu

 

Framistöðu- og virkniauðgandi

Stefna setur eina köku til að muna ef vafrakökur hafa verið samþykktar en einnig er notað þjónustu frá Addthis.com til að bjóða upp á deilingu á fréttum og öðru efni á samfélagsmiðlum. Hægt er að slökkva á kökum frá Addthis  Slökkva á Addthis

Hafa samband

Ef notandi óskar eftir að koma athugasemdum um notkun á vafrakökum á framfæri, skal athugasemdum komið til Stefnu í tölvupósti á hjalp@stefna.is.

 

Vefur í loftið, fleira gagnlegt: