Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur samið við Stefnu um þróun á rafrænni fræðslu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Markmið með samningnum er að nýta smáforritið Veistu til að efla þekkingu framlínustarfsmanna í ferðaþjónustu.
Hæfnisetrið mun þróa grunnsöfn spurninga sem fyrirtæki og samstarfsaðilar Hæfnisetursins geta fengið aðgang að.
Veistu var þróað af Stefnu og er að öllu leyti í eigu Stefnu. Veistu er hugbúnaður sem gefur möguleika á að útbúa skemmtilega spurningaleiki sem styðja við fræðslu. Spurningaleikjunum er síðan deilt með starfsfólki sem getur svarað þeim í snjalltækjum.
Nánar má lesa um appið og sjá myndbönd á Veistu.is.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700